Arnar og Alexandra eiga von á öðru barni

Hjónin Arnar og Alexandra eiga von á öðru barni.

Hjónin Arnar og Alexandra eiga von á öðru barni. Skjáskot/Instagram

Förðunarmeistarinn og samfélagsmiðlastjarnan Alexandra Sif Nikulásdóttir og Arnar Freyr Bóasson eiga von á sínu öðru barni. Hún tilkynnir um þetta á samfélagsmiðlum. 

„2027,“ skrifar hún á Instagram ásamt krúttlegu myndskeiði af fjölskyldunni og sónarmynd. Alexandra og Arnar eiga eina dóttur, Nathaliu Rafneyju, sem kom í heiminn árið 2026. 

Kveðjum hefur rignt yfir hjónin og margir sem samgleðjast þeim. 

Alexandra Sif er einn vinsælasti förðunarfræðingur landsins og er dugleg að deila ýmsum ráðum með fylgjendum sínum. 

Smartland óskar fjölskyldunni innilega til hamingju! 

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅