Arnar gerir tvær breytingar fyrir lokaleikinn
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, gerir tvær breytingar á liði sínu fyrir leikinn gegn lúxemborgska landsliðinu í C-deild Þjóðadeildar Evrópu á Laugardalsvelli klukkan 17.
Ísland vann stórsigur á Búlgaríu, 5:0, ytra síðasta föstudagskvöld og mætir Lúxemborg í síðasta leik sínum í riðlinum í kvöld. Fyrir leik er íslenska liðið í toppsæti riðilsins með ellefu stig og nægir sigur til að vinna hann.
Hjörtur Hermannsson og Brynjólfur Andersen Willumsson koma inn í íslenska liðið fyrir Stefán Teit Þórðarson og Kristal Mána Ingason sem meiddust gegn Búlgaríu.
Lið Íslands: (4-3-3)
Mark: Hákon Rafn Valdimarsson
Vörn: Guðlaugur Victor Pálsson, Daníel Leó Grétarsson, Hjörtur Hermannsson, Logi Tómasson
Miðja: Hákon Arnar Haraldsson, Ísak Bergmann Jóhannesson, Mikael Egill Ellertsson
Sókn: Brynjólfur Andersen Willumsson, Orri Steinn Óskarsson fyrirliði, Andri Lucas Guðjohnsen
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗