Anna Marín: Smákökur með dönskum innblæstri

Anna Marín Bentsdóttir bakar köflóttar smákökur með appelsínu og súkkulaði, innblásnar af dönskum smjörkökum. Samsett mynd/Aðsend

Appelsína og súkkulaði mætast í þessum fallegu, köflóttu smákökum Önnu Marínar Bentsdóttur. Kökurnar eru innblásnar af dönskum smjörkökum. Þær eru mjúkar og smjörkenndar og eiga vel heima á kaffiborðinu á aðventunni.

Anna Marín hefur bakað frá því hún man eftir sér og meðal annars séð um kaffihúsið hjá Kokku á Laugaveginum. Hún hefur yndi af því að útbúa góðan mat og skapa fallega umgjörð þegar hún býður fólki að borða. Þessar smákökur bera þess merki, enda gleðja þær bæði augað og bragðlaukana.

Köflóttar smákökur með appelsínu og súkkulaði

Ljóst og dökkt deig mynda fallegt taflmynstur í þessum mjúku, smjörkenndu smákökum. Ljósmynd/Aðsend

Uppskriftin gefur tvær deiglengjur, um 36–44 kökur.

Grunndeig

  • 150 g smjör, við stofuhita
  • 100 g sykur
  • 1 eggjarauða
  • 1 tsk. vanilludropar
  • fínt rifinn börkur af 1 appelsínu
  • 220 g hveiti
  • lítil klípa af salti

Í dökka deigið

  • 1½ msk. kakó
  • 1 tsk. mjólk, ef þarf til að mýkja deigið

Til samsetningar

  • 1 eggjahvíta

Aðferð

Deigið

  1. Þeytið smjör, sykur, salt og appelsínubörk saman í 2–3 mínútur, þar til blandan er létt og loftkennd.
  2. Bætið eggjarauðunni og vanilludropunum saman við og hrærið vel.
  3. Hnoðið hveitinu varlega saman við, aðeins þar til deigið hefur samlagast.
  4. Skiptið deiginu í tvo jafna hluta. Hnoðið kakóinu saman við annan hlutann. Bætið mjólkinni út í ef deigið verður of stíft.

Samsetning

  1. Fletjið hvorn deighluta út á milli tveggja arka af bökunarpappír. Mótið jafnþykkar og jafnstórar ferhyrndar plötur.
  2. Kælið í að minnsta kosti 30 mínútur.
  3. Penslið annað deigið með þunnu lagi af eggjahvítu og leggið hitt ofan á.
  4. Skerið staflann í tvennt. Penslið efra lag annars helmingsins með eggjahvítu og leggið hinn helminginn ofan á, þannig að ljós og dökk lög skiptist á. Nú eru komin fjögur lög.
  5. Kælið aftur í 15–20 mínútur, þar til deigið hefur stífnað lítillega.
  6. Skerið staflann í jafn breiðar lengjur. Snúið annarri hverri lengju við svo að ljósir og dökkir reitir skiptist á þegar lengjunum er raðað saman.
  7. Penslið örlítilli eggjahvítu á milli lengjanna til að festa þær saman. Mótið tvær deiglengjur með taflmynstri í sárið.
  8. Kælið í eina klukkustund eða yfir nótt.

Bakstur

  1. Hitið ofninn í 170 °C með blæstri.
  2. Skerið deiglengjurnar í sneiðar og raðið á bökunarplötu klædda bökunarpappír.
  3. Bakið í 8–12 mínútur, þar til kökurnar eru rétt farnar að brúnast á köntunum. Gætið þess að baka þær ekki of lengi, því þær eiga að vera ljósar og mjúkar.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅