Arnar gerir tvær breytingar fyrir lokaleikinn

Brynjólfur Andersen Willumsson er í byrjunarliðinu.

Brynjólfur Andersen Willumsson er í byrjunarliðinu. Ljósmynd/Alex Nicodim

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, gerir tvær breytingar á liði sínu fyrir leikinn gegn lúxemborgska landsliðinu í C-deild Þjóðadeildar Evrópu á Laugardalsvelli klukkan 17. 

Ísland vann stórsigur á Búlgaríu, 5:0, ytra síðasta föstudagskvöld og mætir Lúxemborg í síðasta leik sínum í riðlinum í kvöld. Fyrir leik er íslenska liðið í toppsæti riðilsins með ellefu stig og nægir sigur til að vinna hann. 

Hjörtur Hermannsson og Brynjólfur Andersen Willumsson koma inn í íslenska liðið fyrir Stefán Teit Þórðarson og Kristal Mána Ingason sem meiddust gegn Búlgaríu.

Lið Íslands: (4-3-3)

Mark: Hákon Rafn Valdimarsson
Vörn: Guðlaugur Victor Pálsson, Daníel Leó Grétarsson, Hjörtur Hermannsson, Logi Tómasson
Miðja: Hákon Arnar Haraldsson, Ísak Bergmann Jóhannesson, Mikael Egill Ellertsson
Sókn: Brynjólfur Andersen Willumsson, Orri Steinn Óskarsson fyrirliði, Andri Lucas Guðjohnsen

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅