Kristrún: „Það er alltaf leiðinlegt að missa félaga“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir leiðinlegt að sjá Ingvar Þóroddsson yfirgefa Viðreisn og vonast til að þau geti áfram unnið saman að góðum málum.
Hún kveðst ekki þekkja til þess að þingmenn Samfylkingarinnar hafi haft samband við aðra flokka vegna óánægju og segir ekki eðlilegt að „vera fabúlera um svona hluti í fjölmiðlum“.
Þetta kom fram í máli Kristrúnar í samtali við blaðamenn í þinghúsinu í dag. Þar var hún spurð um brotthvarf Ingvars úr Viðreisn og stjórnarmeirihlutanum.
„Mér finnst auðvitað leiðinlegt að sjá hann fara. Það er alltaf leiðinlegt að missa félaga,“ sagði Kristrún.
Hún óskaði honum góðs gengis og velfarnaðar í starfi og sagðist vona að þau gætu áfram unnið saman að góðum málum.
„Allt með kyrrum kjörum í Samfylkingunni“
Kristrún var spurð um ummæli Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, þess efnis að fleiri þingmenn stjórnarmeirihlutans hefðu haft samband við hana og aðra vegna óánægju. Blaðamaður spurði hvort Kristrún væri kunnugt um að einhver úr hennar þingflokki hefði haft samband við aðra flokka.
„Ég þekki ekki til neins slíks og ég held að það sé líka ekki eðlilegt að vera fabúlera um svona hluti í fjölmiðlum. Ég þekki bara ekki neitt til hvers hún er að tala um,“ svaraði Kristrún.
Hún bætti við að hún gæti ekki tjáð sig um aðra flokka.
„Það er allt með kyrrum kjörum í Samfylkingunni.“
Ber fullt traust til Þorgerðar Katrínar
Kristrún ítrekaði nokkrum sinnum í viðtalinu að henni þætti leiðinlegt að missa félaga. Þegar gengið var á hana um hvort ekki væri óþægilegt að það kvarnaðist úr stjórnarmeirihlutanum vísaði hún aftur til þeirra orða og óskaði Ingvari velfarnaðar.
Spurð hvort Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, hefði fullvissað hana um að hún hefði stjórn á sínum flokki sagðist Kristrún bera fullt traust til hennar.
Ekki væri þægilegt að upplifa að fólk gengi úr þingflokki og erfitt væri að lenda í slíkri stöðu. Í þessu tilviki yrði hins vegar að óska viðkomandi velfarnaðar í störfum sínum.
Segir fulla samstöðu um fjárlögin
Spurð um stöðu stjórnarmeirihlutans og hvort hún hefði áhyggjur af frekara brotthvarfi sagði Kristrún ríkisstjórnina hafa fengið sterkt umboð í kosningum og hafa það enn.
„Við verðum fyrst og fremst metin að verkum okkar, ekki út frá tilfæringu milli flokka.“
Ríkisstjórnin hefði fylgt stjórnarsáttmálanum ötullega og væri að ljúka stórum málum, þar á meðal hallalausum fjárlögum fyrir jól.
Þegar vísað var til gagnrýni Ingvars á skattahækkanir og spurt hvort hún gæti skapað stirðleika í stjórnarsamstarfinu sagði Kristrún fulla samstöðu um hallalaus fjárlög.
„Ég hef ekki áhyggjur af því að samþykkt hallalausra fjárlaga verði þessari ríkisstjórn eitthvað erfitt mál. Það standa allir samstíga í því máli.“
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗