Real Madrid með klásúlu til að kaupa Paz - Stórlið vilja fá hann
Nico Paz, 22 ára miðjumaður Como og argentínska landsliðsins, er eftirsóttur af nokkrum af stærstu félögum Evrópu.
Samkvæmt spænska miðlinum Fichajes hafa Paris Saint-Germain, Arsenal, Chelsea og Manchester United öll áhuga á að fá Argentínumanninn í sínar raðir.
Paz hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í ítölsku úrvalsdeildinni og er talinn einn efnilegasti miðjumaður Evrópu.
Real Madrid gæti þó haft betur í baráttunni um leikmanninn.
Spænska stórveldið er með endurkaupsákvæði í samningi Paz og getur því fengið hann aftur til félagsins á fyrirfram ákveðinni upphæð.
Óvíst er hvort Real Madrid muni nýta ákvæðið en áhugi stórliðanna á leikmanninum fer sífellt vaxandi.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗