Gagnrýnir uppsagnir hjá Hafnarfjarðarbæ og spyr hvort hljóð og mynd fari saman

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Mánudaginn 16. nóvember 2026 16:00

Hafnarfjörður. Mynd: FB-síða Hafnarfjarðar.

Nýlega lagði bæjarráð Hafnarfjarðar niður 23 störf sem samsvara 21,6 stöðugildum. Þremur starfsmönnum verður boðið annað starf hjá bænum og nemur því nettófækkun stöðugilda 18,6. 

Ekki er sagt upp fólki í framlínustörfum og hefur bæjarstjórnarmeirihlutinn lýst því yfir að uppsagnirnar hafi ekki áhrif á þjónustu við bæjarbúa.

Varabæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Hafnarfirði, Jóhanna Erla Guðjónsdóttir, hefur miklar efasemdir um þessar fullyrðingar og reifar þær efasemdir í aðsendri grein á Vísir.is. Hún bendir á að meðal þeirra sem sagt er upp störfum séu sérfræðingar og með þeim hverfi dýrmæt þekking: 

„Í tillögum bæjarstjóra er gert ráð fyrir nettófækkun um 18,6 stöðugildi. Þar er ekki aðeins verið að draga úr yfirbyggingu, þar er verið að fækka sérfræðingum á velferðarsviði, segja upp starfsfólki sem hefur sinnt samræmdri móttöku flóttafólks og starfsfólki sem hefur unnið að innleiðingu farsældarlaga og samþættingu þjónustu fyrir börn og fjölskyldur.

Það er því full ástæða til að spyrja: Hvernig getur meirihlutinn haldið því fram að þjónustan skerðist ekki?

Þekking, reynsla og fagmennska eru ekki rekstrarliðir sem hægt er að afskrifa á excel-skjali án afleiðinga. Þegar sérfræðingum er sagt upp hverfur með þeim dýrmæt þekking sem byggð hefur verið upp á löngum tíma. Sú þekking er forsenda þess að hægt sé að veita fjölskyldum, börnum og öðrum viðkvæmum hópum faglega og árangursríka þjónustu.“

Gögn ekki lögð fram

Jóhanna kallar eftir niðurstöðum faglegs mats um að uppsagnirnar séu ekki þjónustuskerðandi. Bæjarbúar séu beðnir um að treysta loforðum um óskerta þjónustu en ekki hafi verið lögð fram fagleg greining sem styðji yfirlýsingar um slíkt. 

„Hvaða greining sýnir að hægt sé að segja upp sérfræðingum á sviði barna- og fjölskyldumála án þess að það hafi áhrif á þjónustu ?

Hvaða gögn sýna að lögbundinni þjónustu verði sinnt með sama gæðastigi eftir að verkefni eru færð á færri hendur?

Hver ber ábyrgð ef sú fullyrðing reynist röng?

Þegar sveitarfélag tekur ákvarðanir sem hafa bein áhrif á börn og fjölskyldur á ekki að styðjast við vonir eða yfirlýsingar. Það á að byggja á faglegum greiningum, gagnsæi og ábyrgri stjórnsýslu. Það er lágmarkskrafa.“

Hljóð og mynd

Jóhanna segir að Framsóknarflokkurinn hafi skilning á því að bærinn standi frammi fyrir krefjandi fjárhagsstöðu og aðhaldsaðgerðir séu nauðsynlegar. En það réttlæti ekki að veikja þjónustu við viðkvæmustu íbúa sveitarfélagsins án þess að gera grein fyrir afleiðingum þess. Hún segir að hér fari ekki saman hljóð og mynd og ennfremur: 

„Bæjarstjóri segir að þjónustan verði óbreytt og að uppsagnir hafi ekki áhrif á framlínufólk. Aðgerðir hans beinast hins vegar að starfsfólkinu sem veitir hana. Bæjarbúar eiga rétt á betri svörum.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅