Frumkvöðull hlýtur verðlaun Jónasar Hallgrímssonar
Vilhjálmur Þorsteinsson hlaut í dag verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2026.
Verðlaunin eru veitt á degi íslenskrar tungu ár hvert. Logi Már Einarsson, ráðherra menningar-, nýsköpunar- og háskólamála, veitti Vilhjálmi verðlaunin í dag.
Vilhjálmur er stofnandi og stjórnarformaður Miðeindar og höfundur Netskraflsins. Hann segist í samtali við mbl.is vera hrærður yfir verðlaununum. Þau séu viðurkenning á starfi Miðeindar og hvatning til frekari dáða.
„Ég var eiginlega orðlaus þegar ráðherrann hringdi í mig, stamandi og sagðist vera í sjokki, sem var náttúrulega ekki alveg nógu góð íslenska, ég hefði átt að segja að ég væri í áfalli,“ segir Vilhjálmur.“
Sveinbjörn Þórðarson upphafsmaður Emblu frá Miðeind(t.v.) og Vilhjálmur Þorsteinsson framkvæmdastjóri Miðeindar (t.h.). Ljósmynd/Aðsend
Íslenskan ekki skilin eftir
Í rökstuðningi dómnefndar segir að á tímum mikilla tæknibreytinga og hraðrar þróunar sem einkennist af notkun spjallmenna og spunagreindar sé mikilvægt að íslenskan verði ekki skilin eftir.
Tungumálinu sé lífsnauðsynlegt að til sé tækni sem ýti undir notkun á því og geri okkur kleift að hrærast í íslenskum málheimi í tölvunni, á netinu og í daglegu lífi.
„Að þessu sinni hlýtur verðlaunin maður sem hefur lagt sín lóð á vogarskálarnar í þessu mikilvæga verkefni og sinnt því af alúð og metnaði, bæði í leik og starfi, á eftirtektarverðan hátt,“ segir þar.
Fjögurra áratuga reynsla
„Ég furða mig á því að vera á þessum flotta lista yfir fólk sem hefur fengið þessi verðlaun,“ segir Vilhjálmur sem hefur starfað við upplýsingatækni og forritun í rúmlega fjóra áratugi og komið að mörgum ólíkum verkefnum á því sviði.
Fyrir utan áðurnefnt Netskrafl, sem 52 þúsund Íslendingar hafa spreytt sig á síðan 2015, hefur hann m.a. skrifað málgreininn Greyni sem byggir á 7.000 línum af handskrifuðum málfræðireglum fyrir íslensku, ýmsan máltæknihugbúnað sem er opinn og ókeypis, og átt hlut að Málstað, vef verkfæra fyrir íslenskt tal og texta sem nálgast nú 50.000 skráða notendur.
Í rökstuðningi segir að eitt af því afdrifaríkasta sem hann hafi gert sé hagnýting á gagnagrunni Árnastofnunar, Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls, sem Vilhjálmur kom á fót árið 2014 við þróun Netskraflsins auk Greynis og máltæknifyrirtækisins Miðeindar sem hagnýtir gögn og gagnagrunna íslenskunnar og hannar verkfæri henni til framdráttar, svo sem þýðingartól, talgreiningartækni og ljóslýsingu.
„Hrærður“
„Þetta kom mér mjög ánægjulega á óvart og ég var dálítið hissa á þessu,“ segir Vilhjálmur.
„Ég lít svo á að þetta sé að töluverðu leyti viðurkenning á starfi okkar í Miðeind. Ég er með frábæran hóp af starfsfólki sem gerir miklu meira en ég nokkurn tímann.
Þetta er líka hvatning til okkar máltæknifólksins. Það vantar svo sem ekki að við finnum fyrir stuðningi frá almenningi. Það eru allir svo jákvæðir gagnvart þessum málstað, fólk vill hjálpa til og vera með. Því þykir vænt um tungumálið og ég held að flestir átti sig á því að þetta starf er mikilvægt.
Á lista yfir verðlaunahafa Jónasar Hallgrímssonar eru mörg mjög tilkomumikil nöfn þannig að ég er bara hrærður yfir því að forritari og íslenskuamatör eigi nú sæti á þeim lista.“
Ekki hagnaðardrifið fyrirtæki
Miðeind er ekki hagnaðardrifið fyrirtæki heldur hugsjónadrifið að því er kemur fram í rökstuðningi. Það miðar ekki að því að skila hagnaði til hluthafa heldur ávinningi til samfélagsins.
„Fyrirtækið reynir einnig eftir bestu getu að sinna verkefnum sem ekki er hægt að sinna á markaðsforsendum eingöngu. Þá er hugbúnaður fyrirtækisins opinn og nýtist þannig almenningi, atvinnulífi og rannsakendum,“ segir í fyrrnefndum rökstuðningi.
„Auk þess að forrita og stýra fyrirtæki heldur Vilhjálmur einnig utan um hóp á Facebook fyrir notendur netskraflsins og leggur mikla og óeigingjarna vinnu í að sinna því samfélagi sem myndast hefur þar — samfélagi sem sameinast í ástríðu fyrir íslensku máli og orðaforða.
„Á íslensku má alltaf finna svar,“ segir í ljóði Þórarins Eldjárns. Vilhjálmur Þorsteinsson hefur sannarlega lagt sitt af mörkum til þess að á íslensku megi áfram alltaf finna svar.“
Nánar er rætt við Vilhjálm í Morgunblaðinu á morgun, þriðjudag.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗