Vill bindandi reglur um „drápsvélmenni“

Hernaður tekur nú grundvallarbreytingum þar sem herir leitast við að nýta gervigreind til að greina skotmörk og ráðast á þau hraðar og af meiri nákvæmni. Ljósmynd/Colourbox

António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti ríki heims í dag til að vinna að ströngum og lagalega bindandi reglum um sjálfvirk vopnakerfi sem geta beitt banvænu afli án mannlegrar íhlutunar.

Slík kerfi eru oft kölluð „drápsvélmenni“ og lýsti Guterres þeim sem „miskunnarlausum“.

Hernaður tekur nú grundvallarbreytingum þar sem herir leitast við að nýta gervigreind til að greina skotmörk og ráðast á þau hraðar og af meiri nákvæmni.

Fulltrúar ríkja koma saman á ráðstefnu hjá Sameinuðu þjóðunum í Genf í þessari viku til að ræða hvort hefja eigi samningaviðræður um bindandi reglur um slík vopn. Víða hefur verið varað við því að fela sjálfvirkum vélum vald yfir lífi og dauða.

„Grípið til aðgerða til að koma í veg fyrir notkun og útbreiðslu þessara miskunnarlausu vopna,“ sagði Guterres í myndbandsávarpi til ráðstefnunnar.

„Ég hvet ykkur til að vinna að því að hefja viðræður um lagalega bindandi samning sem setur sjálfvirkum vopnakerfum skorður, meðal annars með skýrum bönnum og takmörkunum.“

Hann sagði að aldrei mætti láta af viðleitni til að vernda óbreytta borgara gegn blóðbaði og eyðileggingu stríðsátaka og koma í veg fyrir óþarfa þjáningar.

António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.

António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. AFP

Mikið í húfi

Fleiri hafa varað við hættunni sem fylgi því að leyfa sjálfvirkum vopnakerfum að velja skotmörk og drepa án mannlegrar íhlutunar.

Mannréttindasamtökin Human Rights Watch segja að óbreyttir borgarar verði í verulegri hættu ef ekki verði gripið til afdráttarlausra aðgerða á endurskoðunarráðstefnu samningsins um tiltekin hefðbundin vopn, CCW.

Fulltrúar 128 ríkja sitja ráðstefnuna og eiga að ákveða hvort hefja skuli viðræður um lagalega bindandi reglur.

Búist er við erfiðum viðræðum í Genf. Afstaða ríkja er ólík og allar ákvarðanir þurfa að vera teknar með samhljóða samþykki.

Þótt mörg ríki séu hlynnt strangari reglum eru ríki sem búa yfir tækninni treg til að samþykkja takmarkanir á notkun hennar.

Áður en umræðurnar gátu hafist í dag mótmælti fulltrúi Rússlands því að áheyrnarfulltrúum, meðal annars frá Evrópusambandinu og frjálsum félagasamtökum, yrði heimilað að taka þátt í þeim.

Mótmælin urðu til þess að gera þurfti tímabundið hlé á fundinum. Aðgerðasinnar töldu Rússa reyna með þessu að komast hjá gagnrýni vegna meintrar notkunar þeirra á slíkum vopnum í Úkraínu.

„Ríki verða að tryggja að Rússland, eða nokkur hinna örfáu ríkisstjórna sem standa í vegi fyrir framförum, fái ekki að halda framtíðinni í gíslingu,“ sagði Anna Hehir, sem stýrir starfi Future of Life Institute að reglum um notkun gervigreindar í hernaði.

„Það er of mikið í húfi.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅