Laufey og Björk hljóta Grammy-tilnefningar

Laufey og Björk eru tilnefndar til Grammy-verðlauna fyrir sitthvort lagið.

Laufey og Björk eru tilnefndar til Grammy-verðlauna fyrir sitthvort lagið. Ljósmynd/Samsett

Íslensku tónlistarkonurnar Björk og Laufey hljóta tilnefningar til Grammy-verðlaunanna 2027. 

Björk er tilnefnd, ásamt Rosaliu og Yves Tumor, fyrir lagið „Berghain“ í flokknum lag ársins í almennum flokki og upptaka ársins. Þess utan er lagið tilnefnt í flokknum tónlistarmyndband ársins. 

Laufey er tilnefnd fyrir söng í laginu „Madwoman“ í flokki hefðbundinnar popptónlistar. 

Laufey hefur þegar hlotið Grammy-verðlaun tvívegis, árið 2024 fyrir plötuna Bewitched og fyrr á þessu ári fyrir A Matter of Time. Björk hefur hins vegar áður hlotið 16 tilnefningar til verðlaunanna en ekki hreppt verðlaun. 

Breska tónlistarkonan Raye hlýtur flestar tilnefningar í ár, alls ellefu, en þar á eftir kemur Rosalía með níu.

Grammy-verðlaunin verða afhent í 69. sinn í Los Angeles 7. febrúar.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅