Laufey og Björk hljóta Grammy-tilnefningar
Íslensku tónlistarkonurnar Björk og Laufey hljóta tilnefningar til Grammy-verðlaunanna 2027.
Björk er tilnefnd, ásamt Rosaliu og Yves Tumor, fyrir lagið „Berghain“ í flokknum lag ársins í almennum flokki og upptaka ársins. Þess utan er lagið tilnefnt í flokknum tónlistarmyndband ársins.
Laufey er tilnefnd fyrir söng í laginu „Madwoman“ í flokki hefðbundinnar popptónlistar.
Laufey hefur þegar hlotið Grammy-verðlaun tvívegis, árið 2024 fyrir plötuna Bewitched og fyrr á þessu ári fyrir A Matter of Time. Björk hefur hins vegar áður hlotið 16 tilnefningar til verðlaunanna en ekki hreppt verðlaun.
Breska tónlistarkonan Raye hlýtur flestar tilnefningar í ár, alls ellefu, en þar á eftir kemur Rosalía með níu.
Grammy-verðlaunin verða afhent í 69. sinn í Los Angeles 7. febrúar.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗