„Brostinn á flótti úr stjórnarliðinu“
Ingvar Þóroddsson er þriðji þingmaðurinn til að segja sig úr ríkisstjórnarflokki. mbl.is/Karítas/María
„Það er töluvert mikill skjálfti í ríkisstjórninni og það hriktir í stoðum hennar,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, um úrsögn Ingvars Þóroddssonar þingmanns úr Viðreisn í dag.
Ingvar gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn en hann segist eiga meiri samleið með honum þegar kemur að grundvallarmálum. Í tilkynningu sinni sagði Ingvar stefnu ríkisstjórnarinnar ekki lengur samræmast sannfæringu sinni og að hann gæti ekki lengur stutt ríkisstjórnina heilshugar.
Flótti úr stjórnarliðinu
Eiríkur segir þetta ekki góð tíðindi fyrir ríkisstjórnina.
„Það kvarnast mjög hratt úr stjórnarliðinu. Hingað til hafa náttúrulega tveir nú þegar farið og það hefur kannski verið hægt að líta á það sem svona sérstök tilvik sem segja ekkert mikið stærri sögu. En núna þegar sá þriðji bætist við þá er bara brostinn á flótti úr stjórnarliðinu,“ segir Eiríkur.
Að sögn Eiríks er úrsögn Ingvars reiðarslag fyrir ríkisstjórnina í heild sinni og að ekki megi mikið út af bregða ef hún á að geta haldið velli.
„Það sem gerist þegar meirihlutinn verður svona tæpur er að vægi þeirra stjórnarliða sem vilja beita áhrifum sínum og stilla ríkisstjórninni upp við vegg verður alltaf meira og meira. Þannig að hver og einn þingmaður fer að fá svona ákveðið úrslitavald.“
Róðurinn þyngist
Þá segir Eiríkur að styrkur ríkjandi ríkisstjórnar hafi ekki einungis verið samheldnin milli flokksformannanna heldur einnig fólginn í traustum og sterkum þingmeirihluta.
„Þetta þýðir að róðurinn verður þyngri og það verður erfiðara fyrir ríkisstjórnina að halda velli, þótt ég sé ekki að spá henni falli. En ríkisstjórnin má bara við vinnu eftir þetta og má ekki við fleiri liðshlaupum,“ segir Eiríkur.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗