Næsti James Bond afhjúpaður - „Draumur að rætast“
Leikarinn Robert Pattinson, sem er hvað frægastur fyrir að hafa leikið vampíruna Edward í Twilight-þríleiknum og ofurhetjuna Batman í samnefndri kvikmynd, mun nú taka að sér hlutverk njósnara hennar hátignar, James Bond. Frá þessu greinir BBC.
Pattinson segir þetta gífurlegan heiður og þakkar Amazon MGM studios fyrir þennan mikla heiður.
„Að það sé draumur að rætast með þessu hlutverki er vægt til orða tekið. Ég gæti ekki verið spenntari fyrir þessu samstarfi og vinnunni sem er fram undan með þessu frábæra teymi.“
Leikstjóri næstu kvikmyndarinnar um njósnarann fræga, sjálfan 007, er Denis Villeneuve en hann segist þakklátur öllum þeim leikurum sem sýndu hlutverkinu áhuga.
„Við erum umkringd gífurlegum hæfileikum, en það getur bara verið einn 007. Ég er himinlifandi að fá að bjóða Robert Pattinson velkominn sem næsta James Bond. Hann býr yfir tímalausri sál 007 og færir með sér algjörlega nýjan anda. Ég get ekki beðið eftir að hefjast handa.“
Pattinson tekur við hlutverkinu af Daniel Craig sem hefur farið með hlutverkið frá árinu 2006 og á þeim tíma leikið njósnara hennar hátignar í fimm kvikmyndum: Casino Royale, Quantum of Solace, Skyfall, Spectre og No Time to Die. Síðasta Bond-mynd kom út árið 2021 en aðdáendur hafa ekki þurft að vera þetta lengi án Bond síðan forveri Craigs, Pierce Brosnan, tók við hlutverkinu af Timothy Dalton árið 1995, en þá liðu sex ár milli mynda. Aðrir sem hafa farið með hlutverkið eru Sean Connery, George Lazenby og Roger Moore. Fyrsta kvikmyndin kom út árið 1962 og til gamans má geta að þeir sem fæddust það ár eru nú að nálgast lífeyrisaldur.
Robert Pattinson. Mynd/Getty
Fréttin hefur verið uppfærð
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗