Tielemans var áttundi kostur United
Manchester United keypti Youri Tielemans frá Aston Villa í sumar eftir að hafa misst af nokkrum miðjumönnum sem voru ofar á óskalistanum, að því er The Athletic greinir frá.
Elliot Anderson var efstur á lista félagsins en gekk til liðs við Manchester City. Á meðal annarra sem voru á listanum voru Mateus Fernandes, Sandro Tonali, Aurélien Tchouaméni, Alex Scott, Ederson og Ayyoub Bouaddi.
United íhugaði einnig að fá Leon Goretzka á frjálsri sölu áður en ákveðið var að veðja á Belgann. Þjóðverjinn gekk í kjölfarið til liðs við Villa.
Tielemans, sem er 29 ára, hefur skorað eitt mark og lagt upp þrjú í 14 leikjum fyrir United, sem situr í næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir tíu umferðir.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗