Skilaboð Brands úr fangelsi til rannsóknar

Í skilaboðunum greindi Brand frá því að hann hefði verið fluttur í fangelsi með vægari öryggisgæslu og væri þar vistaður með öðrum kynferðisbrotamönnum. AFP

Bresk yfirvöld rannsaka skilaboð sem grínistinn Russell Brand sendi frá sér á samfélagsmiðlum eftir að hann var dæmdur í fangelsi fyrir nauðgun og önnur kynferðisbrot. Talsmaður forsætisráðherra Bretlands lýsti skilaboðunum í dag sem „viðbjóðslegum“.

Laura Gallacher, eiginkona Brands, las skilaboðin upp í myndskeiði sem birt var á YouTube-rás þeirra í gær. Þar hélt Brand fram sakleysi sínu.

Brand, sem er 51 árs, var í síðustu viku dæmdur í tíu og hálfs árs fangelsi fyrir eina nauðgun og þrjú önnur kynferðisbrot. Hann varð þekktur sem grínisti og leikari en hefur á síðari árum haslað sér völl sem íhaldssamur áhrifavaldur á netinu með áherslu á trúmál.

Í skilaboðunum greindi hann einnig frá því að hann hefði verið fluttur í fangelsi með vægari öryggisgæslu og væri þar vistaður með öðrum kynferðisbrotamönnum.

Mega ekki láta aðra birta ummæli sín

„Þetta er augljóslega viðbjóðslegt og málið er rannsakað í flýti. Við væntum þess að gripið verði til aðgerða reynist hann hafa brotið reglurnar,“ sagði talsmaður Andy Burnham forsætisráðherra.

Hann sagði föngum stranglega bannað að senda frá sér yfirlýsingar sem yllu brotaþolum vanlíðan. Þeim væri aðeins heimilt að ræða við fjölmiðla í undantekningartilvikum.

„Fangar geta ekki farið í kringum þessar reglur með því að láta einhvern annan birta ummæli sín.“

Ed Miliband utanríkisráðherra fordæmdi einnig skilaboðin.

„Engin iðrun, engin samúð með þolendunum, bara viðbjóðsleg ummæli,“ sagði hann við Sky News.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅