Daði hafnar því að breytingum hafi verið laumað í gegn
Daði ítrekaði að málið hefði fengið þrjár umræður á Alþingi eins og önnur lagafrumvörp. „Ef hægt er að smygla einhverju þar í gegn þá eru það alveg nýjar fréttir fyrir mér.“ mbl.is/Eyþór
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir mikilvægt að tryggja með einhverjum hætti aðkomu Alþingis að breyttu fyrirkomulagi við skipan í stjórnir ríkisfyrirtækja. Full ástæða sé til að ræða skipan valnefnda og endurskoða almenna eigendastefnu ríkisins.
Hann segir þó að farið hafi verið að lögum við stjórnarskipanirnar og hafnar því að breytingum á fyrirkomulaginu hafi verið laumað í gegnum þingið.
Þetta kom fram í svörum Daða við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag.
Segir lögin hafa boðið upp á fleiri leiðir
Sigurður Ingi sagði breytingarnar hafa komið til í tengslum við niðurlagningu Bankasýslu ríkisins. Finna hefði þurft nýja aðferð við skipan í stjórnir fjármálafyrirtækja, en heimild til að beita sömu aðferð við skipan í fleiri stjórnir hefði verið „laumað í gegn“.
Hann taldi lögin hafa boðið upp á fleiri leiðir en fjármálaráðherra hefði valið. Spurði hann hvort komið hefði til álita að útiloka ekki sveitarstjórnarmenn frá stjórnarsetu og að hafa mismunandi valnefndir og hæfniskröfur eftir því hvers konar fyrirtæki ætti í hlut.
Daði svaraði því að málið hefði fengið þrjár lögboðnar umræður á Alþingi. Sigurður Ingi hefði sjálfur tekið sérstaklega fram í framsöguræðu sinni að fyrirkomulagið sem gilt hefði um fjármálafyrirtæki myndi ná til allra stærri fyrirtækja á vegum hins opinbera.
Fyrirkomulagið hefði gilt frá því að ríkið tók yfir bankana og gefist vel. Sigurður Ingi hefði sjálfur, sem ráðherra, flutt frumvarp um að útvíkka það.
„Þetta fyrirkomulag hefur verið notað gagnvart þeim öllum og að sjálfsögðu var ekki gengið gegn vilja þingsins um það að fyrirkomulagið sem hafði gilt um fjármálafyrirtækin gilti um öll stærri fyrirtæki,“ sagði Daði.
Sigurður Ingi sagði breytingarnar hafa komið til í tengslum við niðurlagningu Bankasýslu ríkisins. Finna hefði þurft nýja aðferð við skipan í stjórnir fjármálafyrirtækja, en heimild til að beita sömu aðferð við skipan í fleiri stjórnir hefði verið „laumað í gegn“. mbl.is/Eyþór
Telur rétt að ræða skipan valnefnda
Í síðari ræðu sinni sagði Sigurður Ingi ráðherra ekki hafa svarað því hvort aðrar útfærslur hefðu komið til álita. Hann spurði einnig hvers vegna sama fyrirkomulagi hefði ekki verið beitt við skipan í stjórnir Byggðastofnunar og HMS. Þar hefðu ráðherrar viðkomandi málaflokka skipað eigin flokksmenn í stjórnir.
Daði ítrekaði að farið hefði verið að lögum en sagði eðlilegt að ræða aðkomu Alþingis.
„Ég hef ítrekað sagt það hér í ræðustól að það er mikilvægt að við þessa breytingu sé aðkoma þingsins með einhverjum hætti tryggð.“
Hann sagði fulla ástæðu til að ræða hvernig valnefndir væru skipaðar og endurskoðun almennrar eigendastefnu ríkisins. Hlutverk stefnunnar væri að koma markmiðum og áherslum ríkisins sem eiganda til skila í rekstri fyrirtækjanna.
Spurði um traust til stjórnar Landsvirkjunar
Sigurður Ingi vék einnig að samskiptum fjármálaráðherra og stjórnar Landsvirkjunar. Hann sakaði ráðherra um að hafa ekki sagt satt 19. október og sagði fundi í ráðuneytinu án forstjóra bera keim af pólitískum afskiptum og ekki vera í anda laga um fyrirtækið.
Þá sagði hann allt traust til stjórnar Landsvirkjunar horfið og spurði hvernig ráðherra hygðist bregðast við því.
Daði hafnaði því að fundirnir hefðu brotið í bága við lög um Landsvirkjun. Hann vísaði til fyrri svara sinna og munnlegrar skýrslu um málið og benti á að það væri til skoðunar hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Hann svaraði ekki sérstaklega spurningunni um hvernig bregðast ætti við því vantrausti á stjórnina sem Sigurður Ingi lýsti.
Hafnar ásökunum um óheiðarleika
Í lok síðara svars síns mótmælti Daði því sem hann taldi felast í ummælum Sigurðar Inga: að starfsmenn fjármálaráðuneytisins hefðu farið óheiðarlega að gagnvart þinginu.
Hann sagði slíkar ásakanir ekki við hæfi. Starfsmenn ráðuneytisins væru vandað fólk sem stæði vel að ákvörðunum sínum og ráðleggingum.
Daði ítrekaði að málið hefði fengið þrjár umræður á Alþingi eins og önnur lagafrumvörp.
„Ef hægt er að smygla einhverju þar í gegn þá eru það alveg nýjar fréttir fyrir mér.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
