Spron skýtur aftur upp kollinum

Merki útibús Spron á Seltjarnarnesi tekið niður í kjölfar þess að sjóðurinn hvarf af sjónarsviðinu. mbl.is/Ómar

Margir ráku upp stór augu þegar nafn Spron (áður Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis) skaut upp kollinum í Lögbirtingablaðinu í lok síðustu viku. Ástæðan var að félagið var tekið til gjaldþrotaskipta samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, en það var að kröfu Skattsins. Hafði Spron ekki skilað ársreikningum síðan fyrir árið 2020.

Spron var þjóðnýtt eftir fjármálahrunið, en stærstur hluti eigna fór inn í Nýja Kaupþing, sem síðar varð Arion banki. Slitastjórn var skipuð yfir því sem eftir varð, en Drómi hf. tók við eignum og tryggingaréttindum sparisjóðsins.

Samkvæmt upplýsingum mbl.is er krafan um gjaldþrotaskiptin komin vegna nýrra reglna um skil á ársreikningum, en slitastjórnin hefur að mestu lokið sínu verkefni og var stærstum hluta þeirra upphæða sem eftir voru í félaginu úthlutað árið 2021, meðal annars skaðleysissjóði upp á um 280 milljónir.

Eftir standa í félaginu örfáar milljónir, en erfiðlega hefur gengið að ná í síðustu hluthafana og greiða þá upphæð út.

Líklegasta niðurstaðan er að slitastjórnin muni óska eftir afturköllun á gjaldþrotaúrskurðinum og greiða þá upphæð sem eftir er í félaginu inn á vörslureikning hjá Hluthafaskrá og óska svo eftir slitum á félaginu. Samkvæmt lögum ber Hluthafaskrá að geyma slíkar upphæðir í 10 ár áður en þær renna til ríkisins ef enginn setur fram kröfu um útborgunina.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅