Napoli vill fá leikmenn frá United og Chelsea í janúar

Napoli hefur áhuga á að fá Joshua Zirkzee, framherja Manchester United, og Jamie Gittens, kantmann Chelsea, til liðs við sig í janúarglugganum.

Þetta kemur fram hjá ítalska miðlinum Tuttomercato en félagið vill styrkja sóknarlínu sína fyrir síðari hluta tímabilsins.

Zirkzee er 25 ára Hollendingur sem hefur átt erfitt með að festa sig í sessi hjá Manchester United. Hann gæti því fengið tækifæri til að endurvekja ferilinn á Ítalíu.

Gittens, sem er 22 ára, hefur einnig verið orðaður við brottför frá Chelsea.

Ekki liggur fyrir hvort Napoli vilji kaupa leikmennina eða fá þá á láni.

Óvíst er hvort ensku félögin séu tilbúin að samþykkja félagaskipti í janúar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅