Breki Karlsson: Örorka þýðir ekki endilega tekjutap – tryggingar þurfa ekki að vera svona dýrar
Ísland er með allt öðruvísi reglur um örorkubætur en t.d. önnur Norðurlönd, sem veldur því að tryggingariðgjöld eru miklu hærri hér en annars staðar á Norðurlöndum. Við erum ekki með neitt lágmark þegar kemur að útgreiðslu örorkubóta en á hinum Norðurlöndunum eru mörkin 10-15%. Neytendasamtökin hafa tekið saman skýrslu um tryggingamarkaðinn og gert tillögur til úrbóta. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
Já, svo erum við með allt, allt öðruvísi reglur um, um, örorku heldur en nágrannaþjóðirnar.
„Já, við erum ekki með neinn lágmarksþröskuld. Á Norðurlöndunum er, er þröskuldur á bilinu 10 til 15%. Það er að segja, rannsóknir hafa bent til þess að verði fyrir undir
Nei. Getur þetta ekki farið aðeins eftir því hvers konar vinnu fólk stundar?
„Að sjálfsögðu og hvers konar örorka það er? Fyrir tónlistarmann er augljóslega ef þú missir hálfa heyrn á öðru eyra þá getur það haft veruleg áhrif, en segjum sem svo að þú missir framan af, af, tánni eða eitthvað slíkt. Það þarf ekkert endilega að hafa eða missir hálft eyrað án þess að það hafi áhrif á, þá verðurðu vissulega fyrir miska og það þarf að bæta hann. En það er þetta með framtíðartekjuöflun þína. Hún verður líklega ekki fyrir neinu. Það er ekkert tjón sem þarf að bæta.“
Og það er örorka eins og þú bendir réttilega á, örorka þarf ekki að leiða til tekjutaps.
„Nei, algjörlega og við komumst að því að 90% mála og 80% greiðslna vegna varanlegrar örorku er örorka undir 15%. Árið 2024 voru greiddir 10 milljarðar út, átta milljarðar af þeim voru vegna örorku sem er undir 15% og auðvitað sér þessu stað í, í iðgjöldum og það má lækka iðgjöld verulega með því að setja einhvers konar lágmarksþröskuld. Það þarf ekkert að vera 15% eins og í, eins og er í Danmörku, má vera 10% eins og í Svíþjóð og Noregi eða eitthvað slíkt. Bara þannig að það sé alveg og það sé alveg kýrskýrt, þá vilja Neytendasamtökin að allt tjón sé bætt 100% en ekki meira en það. Ef það er ekkert tjón þá þarf ekki að bæta það.“
Nei, nei, þetta er góð regla. Ég hef rætt við forstjóra tryggingafélags og hann talaði alveg á þessum nótum sem þú talar um þannig að ég held að þarna, þarna séu sameiginlegir hagsmunir. Þetta er náttúrulega ein ástæða fyrir því hversu miklu dýrari tryggingar eru hér á landi en í nágrannalöndunum. En þetta er ekki ein ástæða.
„Í okkar skýrslu komumst að því að samsett hlutfall, það er að segja útgreiddar bætur versus inngreidd iðgjöld, það er miklu minni arðsemi af skaðabótatryggingum á Íslandi heldur en á Norðurlöndum. En með persónutryggingar, það er að segja líf- og sjúkdómatryggingar, þar er veruleg arðsemi.
Við sjáum það að þó að það sé kannski ekkert alveg réttmætur mælikvarði þá gefur það samt sem áður að þar er samsetta hlutfallið 70, sem sagt þá má reikna með að það sé allt að 70% arðsemi af líf- og sjúkdómatryggingum og þar eru vissulega mikil tækifæri til að gera betur og þar höfum við meðal annars bent verkalýðshreyfingunni á að í nágrannalöndunum okkar þá spilar verkalýðshreyfingin mjög stóra rullu í þessum persónutryggingum með einum eða öðrum hætti og í Danmörku velur fólk sér verkalýðsfélag meðal annars með tilliti til persónutrygginga sem þeir bjóða.
Þannig gæti verkalýðshreyfingin komið inn og aukið samkeppni á því sviði. Miðað við alla vega þær tölur og þá rannsókn sem við gerðum. Það eru jafnvel vísbendingar um að líf- og sjúkdómatryggingar séu í sumum tilfellum að niðurgreiða skaðatryggingarnar.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗