Daninn að taka við í Lundúnum

Thomas Frank er að taka við í Crystal Palace.

Thomas Frank er að taka við í Crystal Palace. AFP/Justin Tallis

Crystal Palace hefur náð samkomulagi við Danann Thomas Frank og verður hann næsti knattspyrnustjóri félagsins að sögn Sky Sports.

Frank, sem er fyrrverandi knattspyrnustjóri Brentford og Tottenham, er staddur á æfingasvæði Palace á meðan gengið er frá lokaatriðum. Búist er við tilkynningu í dag eða á morgun.

Frank myndi taka við af Pierre Sage, sem var rekinn 12. nóvember eftir sjöunda tap liðsins í deildinni á tímabilinu.

Palace situr á botni ensku úrvalsdeildarinnar með sjö stig, tveimur stigum frá öruggu sæti, og sækir Coventry heim á laugardaginn. Frank hefur verið án starfs síðan Tottenham rak hann í febrúar.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅