Mist og Steinunn taka við nýjum stöðum
Mist Edvardsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðs- og kynningarmála hjá Creditinfo og Steinunn Björnsdóttir hefur tekið við stöðu forstöðumanns viðskiptastýringar hjá félaginu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Creditinfo en báðar hafa þær starfað hjá félaginu um árabil.
Mist hefur starfað hjá Creditinfo frá árinu 2019 sem viðskiptastjóri auk þess sem hún hefur sinnt markaðsmálum félagsins undanfarin misseri.
Steinunn hóf störf hjá Creditinfo árið 2016, fyrst sem þjónustufulltrúi og síðar sem viðskiptastjóri. Hún hefur því víðtæka reynslu af samskiptum við viðskiptavini og þjónustu félagsins.
Báðar eiga þær jafnframt að baki íþróttaferil á landsliðsstigi. Mist lék með íslenska landsliðinu í knattspyrnu og Steinunn með landsliðinu í handknattleik.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗