Daninn að taka við í Lundúnum
Crystal Palace hefur náð samkomulagi við Danann Thomas Frank og verður hann næsti knattspyrnustjóri félagsins að sögn Sky Sports.
Frank, sem er fyrrverandi knattspyrnustjóri Brentford og Tottenham, er staddur á æfingasvæði Palace á meðan gengið er frá lokaatriðum. Búist er við tilkynningu í dag eða á morgun.
Frank myndi taka við af Pierre Sage, sem var rekinn 12. nóvember eftir sjöunda tap liðsins í deildinni á tímabilinu.
Palace situr á botni ensku úrvalsdeildarinnar með sjö stig, tveimur stigum frá öruggu sæti, og sækir Coventry heim á laugardaginn. Frank hefur verið án starfs síðan Tottenham rak hann í febrúar.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗