Flutningaskipi hvolfdi eftir grunaða drónaárás
Flutningaskipi hvolfdi undan ströndum Búlgaríu í dag eftir það sem skipverjar lýstu sem drónaárás. Tólf skipverjum var bjargað af skipinu, Betul 8, sem siglir undir sómölskum fána.
Að sögn búlgarska samgönguráðuneytisins hvolfdi skipinu innan efnahagslögsögu landsins. Skipverjar sögðu blaðamönnum eftir komuna til hafnarborgarinnar Varna að tveir sjódrónar hefðu hæft skipið.
Atvikið er það nýjasta í röð árása á skip á Svartahafi í tengslum við stríðið í Úkraínu.
Enginn alvarlega slasaður
Samgönguráðuneytið sagði í yfirlýsingu að enginn hefði slasast alvarlega en skipverjunum væri mjög kalt.
Björgunarstjórnstöðinni í Varna barst neyðarkall klukkan 7.15 að íslenskum tíma. Skipið var þá um 40 sjómílur, eða 74 kílómetra, suðaustur af Kaliakra-höfða.
Betul 8 var á leið frá Rúmeníu til Egyptalands með hveitifarm.
Herskip var sent á vettvang til að kanna hvort mengun hefði orðið frá flutningaskipinu, að sögn ráðuneytisins.
Þrjú skip urðu fyrir árás um helgina
Samkvæmt yfirvöldum í Rúmeníu urðu þrjú skip fyrir árás undan ströndum landsins um helgina. Ekki var greint frá mannfalli eða meiðslum í þeim árásum.
Dan Neculaescu, utanríkisráðherra Rúmeníu, sagði í dag að nýjustu atvikin væru „óásættanleg“.
Frá því í byrjun október hafa að minnsta kosti 13 kaupskip orðið fyrir drónaárásum á Svartahafi undan ströndum Rúmeníu og Búlgaríu. Yfir 30 sjómenn hafa látist eða er saknað eftir árásirnar.
Bæði Rúmenía og Búlgaría hafa bent á Rússa sem mögulega gerendur. Búlgörsk yfirvöld hafa þó lagt áherslu á að ekki liggi fyrir sannanir um hver standi að baki árásunum.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗