Kristrún: Stend með Daða

„Að sjálfsögðu stend ég með hæstvirtum fjármálaráðherra í þessu máli en það er ekki það sama og að ég komi hér upp í pontu og segi stjórninni fyrir verkum.“ mbl.is/Eyþór

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist standa með Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra í málinu sem varðar starfslok Harðar Arnórssonar hjá Landsvirkjun. Hún ætli hins vegar ekki að segja stjórn fyrirtækisins fyrir verkum um ráðningu nýs forstjóra.

Þetta kom fram í svörum hennar við fyrirspurn Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag.

Guðrún spurði í tvígang hvort treysta mætti því að stjórn Landsvirkjunar biði með ráðninguna þar til stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefði skilað niðurstöðu sinni. Nefndin hefur til skoðunar samskipti stjórnarinnar og fjármálaráðherra í aðdraganda starfsloka Harðar.

Kristrún gaf ekki fyrirheit um að beðið yrði með ráðninguna. Hún lagði áherslu á að stjórnin væri sjálfstæð í störfum sínum og að nefndin hefði fullt umboð til að kanna málið.

Ætlar ekki að segja stjórninni fyrir verkum

„Hér er um að ræða stjórn sem er sjálfstæð í sínum störfum þannig að það er ekki í mínu hlutverki að vera með yfirlýsingar hér eða segja stjórninni fyrir verkum héðan úr pontu,“ sagði Kristrún.

Hún sagði að gott væri fyrir málið að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd næði að vinna það hratt og örugglega. Fjármálaráðherra hefði sjálfur sagt ekkert því til fyrirstöðu að öll gögnin yrðu skoðuð.

Kristrún benti jafnframt á að stjórnin hefði fengið sjálfstætt lögfræðiálit á störfum sínum. Ekkert væri óeðlilegt við að fleira yrði skoðað í því samhengi.

„En ég get ekki svarað fyrir hvað stjórnin gerir og ætla ekki að segja henni fyrir verkum héðan úr pontu Alþingis.“

Guðrún sagði Alþingi enn leita svara um starfslok Harðar á sama tíma og stjórn Landsvirkjunar leitaði að nýjum forstjóra. mbl.is/Eyþór

Guðrún vill að ráðningin bíði

Guðrún sagði Alþingi enn leita svara um starfslok Harðar á sama tíma og stjórn Landsvirkjunar leitaði að nýjum forstjóra. Hún vísaði til þess að stjórnarformaðurinn hefði sagt í síðustu viku að ráðningarferlið gæti tekið nokkrar vikur.

Hún rifjaði upp ásakanir Harðar um að fjármálaráðherra hefði farið á svig við lög og að samskipti ráðuneytisins og stjórnarinnar gætu talist pólitísk afskipti og gert Landsvirkjun óstarfhæfa.

Guðrún sagði Sjálfstæðismenn vilja standa vörð um sjálfstæði fyrirtækisins. Nýr forstjóri yrði að geta treyst því að fá að sinna starfi sínu án pólitískra afskipta. Þar sem annar aðili hefði þegar tekið tímabundið við starfinu gæti stjórnin beðið með ráðninguna og gefið nefndinni færi á að ljúka athugun sinni.

Í síðari ræðu sinni gagnrýndi Guðrún forsætisráðherra fyrir að víkja sér undan því að taka afstöðu. Hún spurði hvort Kristrún teldi eðlilegt að sama stjórn réði næsta forstjóra áður en Alþingi hefði lokið athugun sinni á málinu.

Ítrekar stuðning við fjármálaráðherra

Kristrún ítrekaði í síðara svari sínu að hún stæði með fjármálaráðherra.

„Að sjálfsögðu stend ég með hæstvirtum fjármálaráðherra í þessu máli en það er ekki það sama og að ég komi hér upp í pontu og segi stjórninni fyrir verkum.“

Hún sagði fjármálaráðherra fara með eignarhlut ríkisins í Landsvirkjun í gegnum fjármálaráðuneytið. Ekki væri eðlilegt að hún segði stjórninni hvernig hún ætti að haga sér í málinu.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ætti hins vegar að fá andrými til að kanna málið og hefði fullt umboð til þess. Engin ástæða væri til að hafa áhyggjur af því að nefndina skorti svigrúm til þeirrar vinnu.

„En ég ætla ekki að standa hér og segja stjórninni fyrir verkum.“

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅