Gunnar Smári sendir út neyðarkall – „Ritstjóri á barmi taugaáfalls af fjárhagsáhyggjum“
Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 16. nóvember 2026 14:30
Gunnar Smári segir að Samstöðin í greiðsluvanda.
Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Samstöðvarinnar, segir að vegna dráttar á greiðslu fjölmiðlastyrks standi stöðin frammi fyrir greiðsluvanda. Það hrikti í stoðum hennar og leita þurfi á náðir áskrifenda.
„Ég leita til allra stuðningsmanna Samstöðvarinnar um hjálp,“ segir Gunnar Smári í færslu á samfélagsmiðlum.
Rætt hafi verið um að opinber stuðningur til einkarekinna fjölmiðla kæmi snemma í ár. Því hafi Samstöðin reiknað með þrátt fyrir að styrkurinn hafi ekki borist fyrr en á gamlársdag í fyrra.
„Styrkurinn er ekki enn kominn og það hriktir í öllu hjá okkur,“ segir Gunnar Smári. „Það munar um þennan styrk sem kemur einu sinni á ári. Það er erfitt að taka ákvörðun um skera dagskránna mikið niður vegna fjárskorts meðan beðið er eftir styrknum. Við erum í greiðsluvanda, ekki rekstrarvanda. Dæmið gengur upp, eða myndi ganga upp ef þessi dráttur væri ekki á styrknum.“
Kallar Gunnar Smári eftir stuðningi frá áhorfendum og hlustendum stöðvarinnar.
„Ég hvet því alla sem ekki eru áskrifendur að Samstöðinni að gerast áskrifendur sem fyrst. Og þau sem vilja styrkja okkur sérstaklega á þessum undarlega tíma (þegar beðið er eftir marglofuðum stuðningi) geta lagt inn á Alþýðufélagið, sem á og rekur Samstöðina:
Alþýðufélagið
kennitala: 5508911669
banki: 1161-15-201669
Með fyrirfram þökk
Gunnar Smári
ritstjóri á barmi taugaáfalls af fjárhagsáhyggjum“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗