Eitt mót eftir og allt undir hjá Huldu
Hulda Clara Gestsdóttir á enn möguleika á að tryggja sér keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna í golfi, LET, fyrir næsta tímabil eftir að hafa deilt fjórða sæti á Santander Golf Tour-mótinu í Girona á Spáni á laugardag.
Hulda Clara lauk keppni á átta höggum undir pari eftir að hafa leikið lokahringinn á 66 höggum, fimm undir pari. Hún vann sig upp um tíu sæti á lokadeginum og endaði mótið með erni á síðustu holu. Áður hafði hún fengið fimm fugla og tvo skolla á hringnum.
Hringina þrjá lék hún á 69, 70 og 66 höggum og varð jöfn Lornu McClymont frá Skotlandi og Thaliu Martin frá Englandi í fjórða sæti. Þetta var í fimmta sinn á tímabilinu sem Hulda Clara endaði á meðal tíu efstu, en hún er á sínu fyrsta tímabili sem atvinnukylfingur. Í júní fagnaði hún sínum fyrsta atvinnusigri á Czech Ladies Challenge.
Hulda Clara er í níunda sæti stigalista LET Access-mótaraðarinnar með 1.163,33 stig þegar eitt mót er eftir. Hún er aðeins 6,67 stigum á eftir Þjóðverjanum Theresu De Bochdanovits í áttunda sæti og 82,67 stigum frá sjöunda sætinu, sem gefur keppnisrétt á LET á næsta ári.
Tereza Zapletal Kozeluhova frá Tékklandi situr í því sæti með 1.246 stig. Sjö efstu kylfingar stigalistans að tímabilinu loknu fá keppnisrétt á LET árið 2027.
Ragnhildur Kristinsdóttir lauk mótinu í níunda sæti á sex höggum undir pari. Hún lék lokahringinn á 67 höggum, fjórum undir pari, og vann sig líkt og Hulda Clara upp um tíu sæti á lokadeginum.
Ragnhildur var ein í forystu eftir fyrsta hring en gaf eftir á öðrum keppnisdegi. Með góðum lokahring tryggði hún sér engu að síður sæti á meðal tíu efstu.
Andrea Bergsdóttir hafnaði í 32. sæti á pari eftir hringi upp á 69, 71 og 73 högg.
Ragnhildur er í 21. sæti stigalistans með 815,15 stig og Andrea í 24. sæti með 747,61 stig. Þær stefna báðar á að tryggja sér þátttökurétt á lokaúrtökumóti LET, en kylfingar í sætum átta til 32 á lokastigalistanum komast þangað.
Úrslitin í baráttunni um keppnisréttinn ráðast á Islantilla Open á Spáni, sem fram fer 18. til 20. nóvember. Þar fær Hulda Clara síðasta tækifærið til að vinna sig upp í hóp sjö efstu og tryggja sér sæti á sterkustu atvinnumótaröð kvenna í Evrópu.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗