Piparkökuhúsin snúa aftur og minningarnar með
Unnur María Pálmadóttir, markaðsstjóri Kringlunnar, Berglind Hreiðarsdóttir hjá Gotteríi og gersemum og Rannveig Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Kötlu, skipa dómnefnd piparkökuhúsaleiksins. Ljósmynd/Aðsend
Piparkökuhúsaleikur Kötlu verður aftur haldinn í Kringlunni eftir nokkurra ára hlé. Leikurinn var fyrst haldinn árið 1993 og hefur í gegnum tíðina verið hluti af jólaundirbúningi margra. Skilafrestur er til 30. nóvember.
Tvær nýjungar verða í ár: sérstakur barnaflokkur fyrir börn 12 ára og yngri og gestaval, þar sem gestir Kringlunnar kjósa uppáhaldshúsið sitt. Allir krakkar sem skila inn húsi í barnaflokkinn fá bíómiða í Kringlubíó.
„Það er frábært að fá piparkökuhúsaleikinn aftur í Kringluna. Hann vekur upp mikla jólastemningu í húsinu og gleður jafnt unga sem aldna,“ segir Unnur María Pálmadóttir, markaðsstjóri Kringlunnar.
Gestir fá að velja sitt uppáhald
Piparkökuhúsin verða til sýnis í Kringlunni í aðdraganda jóla. Þar geta gestir virt fyrir sér handverkið og greitt sínu uppáhaldshúsi atkvæði.
Í dómnefnd sitja Berglind Hreiðarsdóttir, sem heldur úti síðunni Gotterí og gersemar, Unnur María Pálmadóttir og Rannveig Tryggvadóttir framkvæmdastjóri Kötlu.
Meðal verðlauna eru KitchenAid-hrærivél, gisting fyrir tvo hjá Íslandshótelum, gjafakort í Kringluna, gjafabréf í Hagkaup, gjafakarfa frá Kötlu og fatnaður frá 66°Norður.
„Það er virkilega ánægjulegt að endurvekja piparkökuhúsaleikinn, sem hefur verið stór hluti af jólaundirbúningi margra í gegnum tíðina. Við hlökkum til að sjá afraksturinn í ár,“ segir Rannveig.
Hægt er að skrá sig hér.
Manstu eftir þessum húsum?
Í tilefni af endurkomu piparkökuhúsaleiksins flettum við í myndasafni Morgunblaðsins og rifjum upp hugmyndarík mannvirki og glaðar stundir í Kringlunni. Hér má sjá svipmyndir frá árunum 2000 til 2010, meðal annars Alþingishús úr piparkökum og hús þar sem Grýla lagði sig.
Keppendur í hinni árlegu piparkökuhúsakeppni Kötlu höfðu stillt piparkökuhúsum sínum upp í Kringlunni. Eins og sjá má voru húsin mörg hver mjög skrautleg og af öllum stærðum og gerðum. Ljósmyndin var tekin árið 2000. mbl.is/Ásdís
Elva Dögg Þórðardóttir bar sigur úr býtum í árlegri piparkökuhúsakeppni Kötlu og Kringlunnar árið 2001. mbl.is/Ásdís
Systurnar ungu, Kristín Sóley og Elisabeth Katrín Mason, horfðu hugfangnar á glæsileg og kræsileg piparkökuhúsin sem kepptu í piparkökuhúsakeppni Kötlu í Kringlunni árið 2003. mbl.is/Ómar
Piparkökuhúsin eru komin í Kringluna. „sjáðu, þarna inni sefur Grýla!“ Ljósmynd tekin árið 2003. mbl.is/Ásdís
Piparkökuhúsabakstur hefur lengi verið hluti af jólaundirbúningnum hjá Valdísi Einarsdóttur. Áhuginn minnkaði ekki þegar piparkökuhúsaleikur Kötlu hófst því Valdís hafði tekið þátt frá upphafi. Í tólfta sinn gerði hún Alþingishúsið og var það árið 2004. mbl.is/Jim Smart
Barnabarn Valdísar, Jensína Kristinsdóttir, bjó til þetta hús sama ár, fyrir jólin 2004. mbl.is/Jim Smart
Björn Björnsson og Þórdís Björnsdóttir voru meðal þeirra sem skoðuðu piparkökuhúsin í Kringlunni árið 2005. mbl.is/Sverrir
Þau voru kát, börnin í leikskólanum Rjúpnahæð í Kópavogi, þegar þau lögðu lokahönd á piparkökuhúsið sem þau sendu í piparkökukeppni Kötlu árið 2009. mbl.is/Ómar
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/26/1692626.jpg)










