„Ég er pínu vonsvikin“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lýsir vonbrigðum yfir ákvörðun Ingvars Þóroddssonar að segja skilið við þingflokk Viðreisnar og ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.

„Ég verð að segja alveg einlæglega að ég er pínu vonsvikin,“ sagði hún við blaðamenn á Alþingi rétt í þessu. Mörg samtöl hafi átt sér stað síðasta mánuðinn varðandi óánægju Ingvars, en það fylgi því að starfa í ríkisstjórn sem hafi tekið ákvörðun um að fara í breytingar.

Þið hafið misst tvo þingmenn núna á einum mánuði hér um bil. Þetta hlýtur að vera mikið áfall fyrir flokkinn og þú hlýtur að hugsa um ábyrgð ykkar í forystunni á því hvernig komið er fyrir?

„Já, eðlilega hugsum við alltaf. Að vera í forystu í flokki, og sérstaklega í svona dásamlegum flokki eins og Viðreisn, það eru ákveðin forréttindi en þau eru ekki sjálfgefin, að vera formaður í flokki. Ég trúi því að hver og einn sem er forystumaður í flokki er sífellt að endurskoða hvað er hægt að gera betur, hvernig er hægt að vinna hlutina betur.

En fyrst og síðast er ég með, verð ég að segja, töluverða reynslu úr pólitík. Ég er búin að vera hérna í þessu dásamlega húsi í meira en 25 ár. Maður er búinn að upplifa alls konar. Það að vera í stjórnarmeirihluta kostar ákveðna vigt, það kostar það að vera með aga og það að þurfa að samþykkja mál sem menn eru ekkert endilega í hjarta sínu sammála.“

Fréttin verður uppfærð.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅