Ekki spenntir fyrir því að koma hingað
„Það er mjög kalt en við erum vanir þessu,“ sagði Ísak Bergmann Jóhannesson, landsliðsmaður í fótbolta, á blaðamannafundi á Laugardalsvelli í gær.
Ísland tekur á móti Lúxemborg í Þjóðadeildinni annað kvöld. Ísak var nýkominn af æfingu þegar hann var spurður um völlinn og viðbrigðin eftir hitann í Búlgaríu.
„Ég held að Lúxemborgararnir séu ekki spenntir fyrir því að koma hingað í mínus fimm gráður. Við erum allir vanir þessu og þetta er bara hluti af því að búa á Íslandi. Völlurinn er mjög fínn.“
Hann telur að aðstæður eigi ekki að koma í veg fyrir góðan leik.
„Það er hægt að spila á honum. Boltarnir eru svolítið þungir og frosnir en ég held að þetta verði flottur leikur á morgun og vel hægt að spila á þessum velli.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗