Ingvar: „Í dag fylgi ég sannfæringu minni“
Ingvar Þóroddsson segist fylgja eigin sannfæringu með ákvörðun sinni um að segja skilið við Viðreisn og ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Hann geti ekki lengur stutt ríkisstjórnina.
Í ræðu á Alþingi í dag sagði Ingvar að hann hefði íhugað ákvörðunina lengi en alltaf komist að sömu niðurstöðu. Hann gagnrýndi skattahækkanir ríkisstjórnarinnar og sagði þær ekki samræmast þeim fyrirheitum sem hann hefði stutt.
„Mér þykir sorglegt að til þessa sé komið en ég get ekki stutt ríkisstjórnina lengur,“ sagði hann.
Skattahækkanir þrátt fyrir fyrirheit
Ingvar rifjaði upp að haustið 2024 hefði hann boðið sig fram fyrir flokk sem hefði lofað fremur fáu, en þó því að hækka ekki skatta á almenning. Ríkisstjórnin hefði heitið fyrirsjáanleika og því að hækka ekki virðisaukaskatt á ferðaþjónustu.
Hann hefði stutt þau fyrirheit. Skattahækkanir hefðu engu að síður komið og verið réttlættar með innviðasókn á landsbyggðinni.
„Það átti að ræsa vélarnar. Hver var niðurstaðan? Einu fullhönnuðu jarðgöngin á Austurlandi voru til að mynda slegin út af borðinu,“ sagði Ingvar.
Erfið ákvörðun
Ingvar sagði ákvörðunina erfiða vegna tengsla sinna við fólkið í Viðreisn.
„Ákvörðunin er erfið vegna þess að mér þykir vænt um fólkið í Viðreisn og vinina sem ég hef eignast þar. Ég þakka samstarfið og óska þeim alls hins besta.“
Í lok ræðunnar vitnaði hann í ákvæði stjórnarskrárinnar um að alþingismenn séu eingöngu bundnir við sannfæringu sína og bætti við:
„Og í dag fylgi ég sannfæringu minni.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗