Unnur hjólar í Morgunblaðið eftir frétt laugardagsins – „Þeir kosta svo mikið. Þeir eru óvinir ríkisins“

Unnur Hrefna Jóhannsdóttir gagnrýnir Morgunblaðið harðlega eftir umfjöllun um hækkun ríkisútgjalda til örorku og málefna fatlaðs fólks. Segir hún að blaðið gefi í skyn að öryrkjar taki of mikið til sín.

„Morgunblaðið hefur á síðustu misserum fjallað töluvert um örorku og aðallega um þann kostnað sem öryrkjar, fatlað fólk og langveikt kostar ríki og samfélag. En laugardaginn 14. nóvember toppar Morgunblaðið sig í lélegri rannsóknarblaðamennsku – og spjótunum er, eins og svo oft áður beint að öryrkjum, sem sagt fötluðu fólki og langveiku,“ segir Unnur í aðsendri grein á Vísi. En hún er meðal annars menntuð í blaða-og fréttamennsku og örorkufræðum.

Tilefni greinarinnar er frétt Morgunblaðsins á laugardag undir fyrirsögninni „41 milljarðs hækkun á 2 árum“ þar sem fjallað er um hækkun ríkisútgjalda til málaflokks örorku og fatlaðs fólks. Það er árið 2025 hafi fjárheimildin verið 112,5 milljarðar en verði 153,5 milljarðar fyrir árið 2027.

Unnur er ekki sátt við fréttaflutninginn og segir fyrirsögnina vera smellifyrirsögn. Verið sé að höfða til tilfinninga lesenda með því að segja að um 2 milljörðum meira sé varið til öryrkja en til lögreglu og Landhelgisgæslu og milljarði meira en í fjárfestingar í samgöngum.

Epli og appelsínur

Þá segir hún rangt að telja málefni örorku og fatlaðs fólks saman. Hér sé um að ræða epli og appelsínur.

„Þessir hópar fara ekki alltaf saman. Ef svo er, þá er Morgunblaðið að hækka töluna, færa upphæð undir liðnum málefni fatlaðs fólks, sem eru æði mörg, allt frá samfélagsvirkni og til hjálpartækja, undir örorku,“ segir Unnur. „Morgunblaðið gefur í skyn að það sé örorka sem valdi þessari miklu hækkun, sem sagt að þessi hópur taki allt of mikið til sín.“

Ekki sé sagt hvort tölurnar séu þávirði eða núvirði og ekki gerð tilraun til að segja í hvað fjármunirnir fara.

„Þetta er sem sagt allt þeim að kenna. Þeir eru vonda fólkið. Þeir kosta svo mikið. Þeir eru óvinir ríkisins,“ segir Unnur.

Segir hún að blaðamennska megi vel hreyfa við tilfinningum fólks og hlutverk fjölmiðla sé að veita stjórnvöldum aðhald. En það ætti að vera krafa að fjölmiðlar leiti sannleikans og grípi ekki tölur úr óskyldum flokkum í fjárlögum til að bera saman.

„Góður fjölmiðill skuldar lesendum sínum staðgóðar skýringar á málefninu og í hverju umframkostnaður liggur. Ég er að minnsta kosti jafn nær eftir sem áður. En það veit ég að umfjöllun eins og þessi, í upphlaupstíl, er ekki til þess fallin að draga úr fordómum gagnvart öryrkjum. Fólki eins og mér,“ segir hún.

Skömmin og valdleysið

Þegar Morgunblaðið byrji að „kyrja sönginn um fjölgun öryrkja“ finni öryrkjar til smánar. Eins og þeir kosti samfélagið of mikið. Skömmin fylgir svo og valdleysið er algjört.

Morgunblaðið hafi í þessu tilfelli boðið Guðlaugi Þór Þórðarsyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, að tjá sig og hann verið mjög svartsýnn á stöðuna. Ekki komi fram hvort neinum stjórnarþingmanni hafi verið boðið að tjá sig.

„Blaðamennska eins og hún birtist lesendum Morgunblaðsins er vond blaðamennska. Hún er skaðleg einum af mest jaðarsetta hópnum í samfélaginu. Sá hópur þarf ekkert aðhald,“ segir Unnur að lokum. „Væri ekki hægt að snúa blaðinu við og segja sem svo: Hefur örorka aukist og ef svo er, hvers vegna? Eru einhverjir samfélagslegir þættir sem liggja þar að baki? Hvernig getum við komið til móts við öryrkja? Hvernig getum við veitt fötluðum og langveikum fleiri og fjölbreyttari starfstækifæri, til dæmis með hlutastörfum. Hvað er það sem öryrkjar vilja? Hvað segja talsmenn þeirra samtaka? Hvernig er staðan í öðrum löndum sem við viljum bera okkur saman við. Og svo framvegis. Það er alvöru blaðamennska. Að skoða hvað liggur að baki tölunum í stað þess að slengja þeim fram. Það er fullkomið ábyrgðarleysi. Æj,æj,æj ágæta Morgunblað. Vandaðu þig betur.“ 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅