Sneri aftur eftir fjögurra ára bann – Skoraði í fyrsta leik

Króatíski varnarmaðurinn Mario Vuskovic sneri aftur á knattspyrnuvöllinn um helgina eftir að hafa tekið út fjögurra ára bann vegna lyfjamisnotkunar.

Vuskovic, sem leikur með Hamburg í Þýskalandi, var upphaflega dæmdur í tveggja ára bann en Alþjóðaíþróttadómstóllinn lengdi það í fjögur ár vegna notkunar á ólöglega lyfinu EPO.

Hann lék sinn fyrsta leik í 1.467 daga þegar Hamburg mætti Hajduk Split í æfingaleik á sunnudaginn, degi fyrir 25 ára afmælið sitt.

Vuskovic gerði sér lítið fyrir og skoraði gegn sínu gamla félagi.

„Það komu dimmir og erfiðir tímar. Fjögur ár eru langur tími og þetta er gríðarleg stund fyrir mig,“ sagði hann.

Mario er eldri bróðir Luka Vuskovic, sem hefur slegið í gegn með Brighton í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅