Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – „Give Peace a Chance“ – Ábyrgðin er okkar allra

Engin þjóð getur verið örugg til lengdar í heimi þar sem stríð fá að geisa. Hvað ætlum við að gera til að breyta því?

Við búum á undraverðri en um leið afar lítilli jörð. Á nokkrum klukkustundum getum við ferðast milli heimsálfa og á örfáum sekúndum átt samskipti við fólk hvar sem er í heiminum.

Við erum tengd með viðskiptum, tækni, þekkingu og sameiginlegum lífsskilyrðum. Samt hegðum við okkur stundum eins og hver þjóð búi í sínum eigin heimi og geti tryggt eigin framtíð án tillits til þess sem gerist annars staðar.

En getur nokkur þjóð verið örugg til lengdar á meðan stríð geisa milli annarra þjóða?

Við vitum aldrei hvenær átök kunna að stigmagnast og breiðast út. Það sem virðist fjarlægt í dag getur ógnað öryggi okkar á morgun.

Við eigum aðeins eina jörð. Lifum við ekki í raun í litlu „þorpi“ og ættum að líta á okkur sem eina fjölskyldu? Og friðurinn er sameiginleg ábyrgð okkar allra.

John Lennon – „Give Peace a Chance“

Árið 1969, þegar Víetnamstríðið geisaði, sendu John Lennon og Yoko Ono heiminum einföld en áhrifamikil skilaboð: „Give Peace a Chance“ – Gefum friðnum tækifæri.

Tveimur árum síðar kom hið einstaka lag Imagine, þar sem þau buðu okkur að ímynda okkur heim þar sem fólk gæti lifað saman í friði. Og með Power to the People minnti Lennon á að almenningur hefði vald til að hafa áhrif.

Þessi þrjú lög vekja enn mikilvægar spurningar.

Hvers vegna eigum við svona erfitt með að lifa saman í friði? Hvers vegna sættum við okkur við að stríð haldi áfram árum saman? Og hvers vegna gerum við ekki meiri kröfur til þeirra sem fara með vald og taka ákvarðanir sem geta ráðið úrslitum um líf milljóna manna?

Lennon hafði ekki allar lausnirnar. Hann hvatti okkur til að ímynda okkur betri heim, hugsa sjálfstætt og taka þátt í að breyta honum.

Það er ábyrgð okkur og við getum líka gert það saman.

Nær fimm ár frá innrás Rússa í Úkraínu

Þann 24. febrúar 2022 hófu Rússar allsherjarinnrás í Úkraínu. Nú nálgast fimm ár frá upphafi innrásarinnar. Stríðið hefur kostað ótal mannslíf, sundrað fjölskyldum, eyðilagt mörg „þorp“ samfélög og hrakið milljónir manna frá heimilum sínum.

Þrátt fyrir alþjóðlega friðarviðleitni hefur ekki tekist að tryggja réttlátan og varanlegan frið. Hvernig má það vera?

Hvað er það í samskiptum, hagsmunum og ákvarðanatöku leiðtoga heimsins sem gerir lausnina svona erfiða?

Við verðum að vera skýr um ábyrgðina. Rússland hóf árásarstríðið. Fullveldi Úkraínu og réttur þjóðarinnar til að ákveða eigin framtíð verður að vera virtur. Friður má ekki byggjast á því að árásaraðili sé verðlaunaður fyrir yfirgang. En við megum heldur ekki sætta okkur við að stríð verði viðvarandi ástand sem heimurinn venst smám saman.

Við þurfum stöðugt að leita nýrra leiða til að stöðva blóðsúthellingarnar og skapa forsendur fyrir réttlátum friði.

Hvar er sameiginleg ábyrgð leiðtoga heimsins?

Við þekkjum mikilvægi góðrar leiðtogamenningar úr okkar eigin samfélögum. Góður leiðtogi þarf að geta hlustað, sýnt virðingu, skapað traust og leitað lausna. Hann þarf að geta staðið fast á grundvallargildum án þess að loka öllum leiðum til samtals.

Hvers vegna ættum við ekki að gera sömu kröfur til leiðtoga heimsins?

Við þurfum leiðtoga sem geta byggt brýr milli þeirra sem eiga í djúpstæðum ágreiningi, ekki aðeins þeirra sem þegar eru sammála. Þarna geta reyndir stjórnarerindrekar, fyrrverandi þjóðarleiðtogar og aðrir einstaklingar sem njóta trausts ólíkra aðila gegnt mikilvægu hlutverki.

Að tala við andstæðing sinn er ekki það sama og að samþykkja gerðir hans. En samtalið þarf að hafa tilgang. Það þarf að leiða til aðgerða, samninga og eftirfylgni.

Frá friðaróskum til árangursríkra aðgerða

Við höfum Sameinuðu þjóðirnar, sem voru meðal annars stofnaðar til að vernda komandi kynslóðir gegn hörmungum styrjalda. En hvernig getum við gert betur?

Ég tel að við þurfum að þróa markvissari vinnubrögð við að koma í veg fyrir og leysa stríðsátök.

Í fyrsta lagi: Samstilltari friðarviðleitni. Sameinuðu þjóðirnar, aðildarríki þeirra og aðrir sem geta haft áhrif þurfa að samhæfa betur aðgerðir sínar. Friðarviðleitni má ekki stöðvast þótt formlegar samningaviðræður strandi.

Í öðru lagi: Fleiri brýr milli andstæðinga. Við þurfum að nýta betur einstaklinga og samtök sem njóta trausts ólíkra aðila. Fangaskipti, mannúðaraðstoð og vernd óbreyttra borgara geta skapað grundvöll fyrir frekara samstarfi.

Í þriðja lagi: Skýr ábyrgð og eftirfylgni. Friðarsamningar verða að byggjast á alþjóðalögum, trúverðugum öryggistryggingum og eftirliti með framkvæmd þeirra.

Í fjórða lagi: Lærum af reynslunni. Hvað hefur skilað árangri í fyrri friðarsamningum? Hvað hefur brugðist? Hvernig getum við nýtt þá þekkingu til að bæta vinnubrögðin?

Það er engin ein lausn rétt og það þarf að vera tilbúin að þróa betri lausnir í stað þess að sætta okkur við óbreytt ástand.

Power to the People – við eigum öll að taka þátt

John Lennon minnti okkur á að almenningur ætti ekki að standa aðgerðalaus hjá. Leiðtogar fara með vald, en það vald á að þjóna fólkinu.

Þeir sem hefja árásarstríð bera sérstaka ábyrgð á ákvörðunum sínum. Aðrir leiðtogar bera ábyrgð á því hvernig þeir nýta áhrif sín til að verja mannréttindi, styðja alþjóðalög og leita friðsamlegra lausna.

En við hin höfum líka hlutverki að gegna.

Við getum látið rödd okkar heyrast. Við getum krafist ábyrgðar og gagnsæis. Við getum stutt friðarsamtök, mannúðarstarf og alþjóðlegt samstarf. Við getum hvatt stjórnvöld til að leggja fram raunhæfar tillögur um frið – fordæmt stríð.

Best er að við sjálf byrjum að sýna hvert öðru virðingu og velvild. Hvernig komum við fram hvert við annað? Getum við hlustað á fólk sem hefur aðrar skoðanir? Getum við sýnt virðingu án þess að vera sammála?

Friður milli þjóða og friður í daglegum samskiptum eru ólík verkefni. En bæði kalla þau á vilja til að skilja aðra og leysa ágreining án ofbeldis.

Við þurfum ekki að vera sammála um allt til að geta sameinast um að vinna að friði.

Getur Ísland lagt meira af mörkum?

Í Viðey stendur Friðarsúlan, Imagine Peace Tower, sem Yoko Ono lét reisa til minningar um John Lennon og sameiginlega friðarhugsjón þeirra. Á hverju ári lýsir hún upp himininn og minnir okkur á mikilvægi friðar.

En getum við gert meira en að lýsa upp himininn?

Ísland hefur áður verið vettvangur mikilvægra alþjóðlegra samtala. Við eigum að skoða hvernig við getum nýtt reynslu okkar, alþjóðleg tengsl og sérstöðu til að styðja friðarviðræður.

Við gætum boðið fram vettvang þar sem traustir milligönguaðilar geta rætt saman og þróað hugmyndir sem síðan eru lagðar fyrir þá sem taka ákvarðanir. Ísland getur ekki eitt og sér skapað frið í heiminum. En við getum lagt okkar af mörkum.

Ein jörð – ein fjölskylda

Við gerum réttilega kröfu um alþjóðlegt samstarf í loftslagsmálum. Við vitum að engin þjóð getur ein og sér tryggt sjálfbæra framtíð jarðarinnar.

Hið sama á við um friðinn.

Stríð eyðileggja mannslíf, samfélög, innviði og náttúru. Þau draga úr möguleikum okkar til að vinna saman að öðrum brýnum verkefnum mannkynsins.

Móðir jörð hefur fætt okkur og klætt í ótal kynslóðir. Við berum ábyrgð á að hún geti áfram veitt komandi kynslóðum góð lífsskilyrði.

En það verður erfitt ef við lærum ekki að lifa saman í friði. John Lennon bauð okkur að ímynda okkur betri heim. Kannski er kominn tími til að við gerum meira en að ímynda okkur hann.

Ég vil því hvetja okkur öll – almenning, stjórnvöld, alþjóðastofnanir, félagasamtök og leiðtoga heimsins – til að taka virkari þátt í leit og við gerum okkar allra besta til að friður ríki.

Við þurfum að kalla eftir hugmyndum, styðja raunhæfar lausnir, byggja brýr og gera kröfur um að friðarviðleitni skili árangri.

Ekki á morgun. Ekki þegar næsta stríð brýst út. Heldur núna.

Við eigum aðeins eina jörð og framtíð okkar jarðarbúa er samtvinnuð.

„Give Peace a Chance“ Látum rödd fólksins heyrast. Ímyndum okkur frið – og vinnum saman að því að gera hann að veruleika.

Give Peace a Chance. Power to the People. Imagine Peace.

Ein jörð – ein fjölskylda.

Höfundur er viðskiptafræðingur með MS í stjórnun og stefnumótun, áhugamaður um að friður ríki og kennir Qigong – lifsraekt.is

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅