Þriðja dóttirin komin í heiminn
Chance the Rapper bauð yngstu dóttur sína Hayli velkomna í heiminn á Instagram í gær. Samsett mynd/Instagram
Bandaríski rapparinn Chance the Rapper hefur eignast dóttur sem fengið hefur nafnið Hayli. Hann greindi frá fæðingu hennar á Instagram í gær og birti myndir af nýfæddri dóttur sinni og móður hennar.
„Velkomin í heiminn, Hayli. Mamma og pabbi elska þig. Guð er með þér,“ skrifaði rapparinn, sem er 33 ára. Hann nafngreindi móðurina ekki í færslunni.
Fyrir á hann tvær dætur með Kirsten Corley, þær Kensli, ellefu ára, og Marli Grace, sjö ára. Þau Corley slitu samvistum árið 2024.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗