Þorgerður Katrín leynir ekki vonbrigðunum með Ingvar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, segir að hún hafi orðið fyrir vonbrigðum þegar Ingvar Þóroddsson tilkynnti henni að hann hygðist yfirgefa þingflokkinn og ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.

Ingvar tilkynnti þetta í morgun og komu tíðindin mörgum á óvart.

Þorgerður Katrín segir í viðtali sem birtist á vef Vísis eftir hádegi í dag að hún eigi ekki von á því að missa fleiri þingmenn. 

Ingvar er annar þingmaður Viðreisnar sem kveður flokkinn á skömmum tíma, en áður hafði Jón Gnarr sagt sig úr þingflokknum.

Þorgerður benti jafnframt á að Ingvar hefði samþykkt stjórnarsáttmálann á sínum tíma og gaf lítið fyrir að Viðreisn væri að svíkja kjósendur sína. 

Ríkisstjórnin væri í tiltekt og því fylgi að taka erfiðar en nauðsynlegar ákvarðanir.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅