Frá Ölgerðinni til Vistró

Hafsteinn er menntaður matreiðslumaður og hefur um tveggja áratuga reynslu úr veitingageiranum. Ljósmynd/Vistró

Hafsteinn Snæland hefur tekið við starfi sölu- og markaðsstjóra Vistró. Hann kemur til félagsins frá Ölgerðinni, þar sem hann hefur gegnt starfi rekstrarstjóra brugghúsa frá árinu 2023.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vistró.

Hafsteinn er menntaður matreiðslumaður og hefur um tveggja áratuga reynslu úr veitingageiranum. Hann lærði í Kaupmannahöfn og starfaði í 16 ár sem kokkur og yfirkokkur í Danmörku og Noregi, meðal annars á hinum þekkta veitingastað Noma.

Áður en hann flutti aftur til Íslands árið 2023 bar hann ábyrgð á allri matar- og drykkjarstarfsemi Vísindagarðsins Vitenparken í Noregi. Þar kviknaði áhugi hans á bjórgerð og bætti hann í kjölfarið við sig námi sem bjórþjónn og aflaði sér réttinda sem bjórdómari.

„Eftir frábær ár í bjórnum bauðst mér tækifæri til að komast aftur nær veitingageiranum, sem er svo kraftmikill, lifandi og skemmtilegur. Það að taka við Vistró og leiða stóreldhússviðið inn í framtíðina var áskorun sem höfðaði til mín,“ segir Hafsteinn í tilkynningunni.

Samhliða starfi sínu hjá Ölgerðinni lauk Hafsteinn MBA-námi við Háskólann í Reykjavík vorið 2026 og hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur.

„Með Vistró byggjum við ofan á traustan grunn Danól, skerpum sýnina og setjum okkur metnaðarfull markmið til framtíðar,“ segir Hafsteinn og bætir við að markmiðið sé að efla þjónustu við viðskiptavini og styðja við þróun í veitingageiranum.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅