LeBron náði merkum áfanga

LeBron James með boltann í nótt.

LeBron James með boltann í nótt. AFP/Mitchell Leff

LeBron James fór upp í þriðja sæti yfir flestar stoðsendingar í sögu NBA-deildarinnar í körfubolta þegar Philadelphia 76ers lagði Indiana Pacers 131:124 á heimavelli í nótt.

Hann gaf 11 stoðsendingar og er nú kominn með 12.092 og fór þar með fram úr Jason Kidd.

Charles Lee, þjálfara Charlotte Hornets, var vísað úr húsi eftir að hafa fengið tvær tæknivillur á 17 sekúndum fyrir mótmæli. Lið hans glutraði niður 13 stiga forskoti og tapaði 113:105 fyrir Los Angeles Clippers á útivelli.

Luka Dončić skoraði 43 stig þegar Los Angeles Lakers vann sinn áttunda sigur í röð með því að leggja Phoenix Suns 131:123 á útivelli. Lakers lenti í kröppum dansi undir lokin eftir að hafa verið 31 stigi yfir.

Úrslit næturinnar:

Philadelphia 76ers 131:124 Indiana Pacers

Phoenix Suns 123:131 Los Angeles Lakers

Los Angeles Clippers 113:105 Charlotte Hornets

Utah Jazz 102:110 San Antonio Spurs

Boston Celtics 131:94 Dallas Mavericks

Toronto Raptors 108:112 New York Knicks, eftir framlengingu

Washington Wizards 119:147 Houston Rockets

Milwaukee Bucks 106:113 Atlanta Hawks

Sacramento Kings 103:125 Oklahoma City Thunder

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅