Musk styður endurkomu Huangs
Stuðningsfólk Jensens Huangs reyna nú að afla stuðnings við að hann taki aftur við sem forstjóri Nvidia.
Huang sagði af sér í síðustu viku eftir að upp komst um framhjáhald hans, meðal annars með konu sem er grunuð um njósnir fyrir Kína.
Elon Musk, forstjóri SpaceX, og Tim Sweeney, forstjóri Epic Games, sem framleiðir tölvuleikinn Fortnite, eru meðal þeirra sem styðja herferðina. Henni er ætlað að fá stjórn flöguframleiðandans til að láta Huang taka aftur við starfinu undir slagorðinu „Bring Jensen Back“, eða „Fáum Jensen aftur“.
Huang lét af störfum eftir að upp komst um tvö ástarsambönd utan hjónabands. Annað var við konuna sem er grunuð um njósnir fyrir Kína. Hitt er sagt hafa verið við einn af starfsmönnum fyrirtækisins.
Málið hefur valdið miklum vanda hjá Nvidia, sem er eitt verðmætasta fyrirtæki heims og gegnir lykilhlutverki í gervigreindariðnaðinum og örum vexti hans.
Rúmlega 175 þúsund hafa skrifað undir
Rúmlega 175 þúsund manns hafa skrifað undir opið bréf þar sem stjórn Nvidia er hvött til að láta Huang taka aftur við starfinu á meðan innri rannsókn fer fram. Musk og Sweeney eru meðal undirritaðra, samkvæmt vefsíðunni „Stand with Jensen“.
Aðstandendur herferðarinnar segjast vera núverandi og fyrrverandi starfsmenn Nvidia, samstarfsaðilar, hluthafar og stuðningsmenn.
„Við skrifum af þakklæti í garð Jensens Huangs og beinum skýrri kröfu til stjórnarinnar: Látið Jensen taka aftur við starfinu á meðan óháð rannsókn leiðir staðreyndir málsins í ljós, nema og þar til þið getið lagt fram sannfærandi gögn um að brotthvarf hans sé Nvidia fyrir bestu,“ segir í bréfinu.
Stuðningsfólk Huangs lýsa þar einnig áhyggjum af því að honum hafi verið vikið frá án þess að réttur hans til sanngjarnrar málsmeðferðar hafi verið virtur, að því er segir í umfjöllun BBC.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗