Viðreisn að „svíkja loforð“
„Mér líður vel en ég viðurkenni að þetta tekur á á sama tíma,“ segir Ingvar Þóroddsson, fyrrverandi þingmaður Viðreisnar og núverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann tilkynnti úrsögn sína úr Viðreisn á þingflokksfundi fyrr í dag.
Hann segist hafa reynt að þoka áherslum flokksins í þá átt sem honum hugnast, en það hafi ekki tekist.
„Það er fullreynt.“
Hann segir að samflokksmenn sínir hafi verið ósáttir við ákvörðunina en vonast til þess að fólk virði að hann sé að fylgja eigin sannfæringu.
„Mér hefur þótt ég og flokkurinn hafa verið að svíkja loforð við kjósendur í aðdraganda kosninga,“ segir Ingvar.
Samskiptaleysi í flokknum
Hann segir að samskiptaleysi hafi einkennt flokkinn, líkt og Jón Gnarr lýsti þegar hann gekk úr honum. Í því samhengi nefnir hann ákvörðun um að skera niður framlög til Loftbrúarinnar svokölluðu.
„Það var gert án þess að ræða það á þingflokksfundi. Heldur var mér tilkynnt um það kvöldið áður að þetta væri að koma,“ segir Ingvar.
Hann segir að sjálfstæðismenn hafi tekið sér vel þegar hann sat sinn fyrsta þingflokksfund hjá flokknum. Hann hafi fundið fyrir samleið með þingmönnum flokksins á kjörtímabilinu.
„Ég hef átt mjög gott samstarf við þingmenn Sjálfstæðisflokksins inni í nefndum,“ segir Ingvar.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗