Rokkstjarnan missti tvö yngri systkini sín – „Ég vil ekki glata minningunum um bróður minn eða systur mína“

Kristinn H. Guðnason

Mánudaginn 16. nóvember 2026 13:30

Amy Lee hefur kynnst miklum missi. Mynd/Getty

Rokkstjarnan Amy Lee greinir frá því að hún hafi misst tvö af yngri systkinum sínum. Þessi mikli missir hennar komi fram í lagasmíðum hennar.

Tímaritið Vice greinir frá þessu.

Amy Lee skaust upp á stjörnuhimininn árið 2003 með hljómsveit sinni Evanescence. Það er með smellum á borð við „Bring Me to Life“ og „My Immortal“.

Söngkonan, sem er nú orðin 44 ára, greinir frá því í hlaðvarpinu Spinnig Plates að hún hafi misst tvö yngri systkini.

Amy var elst fimm systkina. Árið 1987, þegar hún var sex ára gömul missti hún þriggja ára gamla systur sína, Bonnie, úr ótilgreindum sjúkdómi.

Árið 2018 missti hún svo 24 ára bróður sinn Robbie. En hann hafði glímt við flogaveiki um langt skeið.

Vill ekki gleyma

Amy segir að eftir dauða systur hennar hafi hún byrjað að hugsa óeðlilega mikið um dauðann. Tónlistin hafi snemma orðið hennar útrás fyrir þessar hugsanir. Þetta hafi alltaf fylgt henni og hún hafi meðal annars samið tvö lög um systur sína, það er „Hello“ og „Like You“.

„Sú sorg var í raun það fyrsta sem fékk mig til að semja tónlist af alvöru,“ segir Amy í hlaðvarpinu. „Á þessum aldri hafa flestir þurft að upplifa dauðann á einhvern hátt og það er eins og það sé svo mikil ást fólgin í sorginni. Að syrgja einhvern jafngildir því að elska hann, að gleyma honum ekki. Ég vil ekki glata minningunum um bróður minn eða systur mína, svo ég mun halda áfram að tala um þau. Og ég mun halda áfram að kafa ofan í alla þætti þessa, ekki aðeins einblína á sorgina við að missa þau, heldur líka á það hvernig manneskjur þau voru.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅