Á annað þúsund með hundrað milljóna eigið fé fékk eingreiðslu
Peningar, fjármunir, seðlar, krónur, verðbólga, fjárlög, ríkissjóður, seðlabunkt, verðgildi, peningastefna, efnahagur, vextir, lán, útlán, vísitala neysluverðs, fjármálamarkaðir. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Alls fengu 1.620 einstaklingar með eigið fé í flokkum frá 100 milljónum króna sérstaka eingreiðslu til lífeyrisþega árið 2025.
Þetta kemur fram í nýju minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytisins til velferðarnefndar Alþingis. Ráðuneytið segir hátt fasteignaverð að mestu skýra eignastöðu viðtakenda en telur að fólk með umtalsverðar fjáreignir ætti ekki að vera í brýnni þörf fyrir sérstakan stuðning.
Minnisblaðið er dagsett í dag og var unnið að beiðni nefndarinnar vegna frumvarps um eingreiðslu og orlofs- og desemberuppbætur. Nefndin óskaði meðal annars eftir nánari upplýsingum um eignasamsetningu viðtakenda og rökstuðningi fyrir því að fólk með talsvert eigið fé fengi eingreiðslu.
Við flokkun eftir eigin fé hafa skuldir verið dregnar frá eignum. Samkvæmt yfirskrift töflunnar er jafnframt deilt með tveimur í eigið fé hjá þeim sem eiga maka.
Þetta kemur fram í nýju minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytisins til velferðarnefndar Alþingis. Ragnar Þór Ingólfsson er félags- og húsnæðismálaráðherra. mbl.is/Karítas
Átta með eigið fé á bilinu 400 milljónir til 1,2 milljarðar
Alls fengu 36.560 einstaklingar eingreiðslu árið 2025 og nam meðalgreiðslan 50.933 krónum. Þeir 1.620 sem voru í eiginfjárflokkum frá 100 milljónum króna voru því um 4,4 prósent viðtakenda.
Af þeim voru 1.507 í flokknum 100–200 milljónir króna. Þeir fengu að meðaltali 41.494 krónur. Fasteignir þess hóps námu að meðaltali 106 milljónum króna og fjáreignir 10,3 milljónum.
Þá voru 105 einstaklingar í eiginfjárflokknum 200–400 milljónir króna og fengu þeir að meðaltali 44.281 krónu. Fasteignir hópsins námu að meðaltali 178,1 milljón króna og fjáreignir 39,5 milljónum.
Átta viðtakendur voru í efsta eiginfjárflokknum, á bilinu 400 milljónir til 1,2 milljarðar króna. Meðalgreiðsla þeirra var 30.794 krónur.
Til samanburðar voru 6.489 viðtakendur með neikvætt eigið fé, eða tæplega 18 prósent hópsins. Þeir fengu að meðaltali 58.849 krónur.
Ráðuneytið segir hátt fasteignaverð að mestu skýra eignastöðu viðtakenda en telur að fólk með umtalsverðar fjáreignir ætti ekki að vera í brýnni þörf fyrir sérstakan stuðning. mbl.is/Sigurður Bogi
Tekjulágt fólk getur talist eignamikið
Ráðuneytið segir fasteignir langstærsta einstaka eignalið viðtakenda. Eingreiðslan sé tekjutengd og fjármagnstekjur af eignum hafi því áhrif á hana.
„Það geta því verið ýmis dæmi um tekjulága einstaklinga sem teljast eignamiklir vegna fasteignamats húsnæðis. Hins vegar ætti sá hópur sem hefur umtalsverðar fjáreignir ekki að vera í brýnni þörf fyrir sérstakan stuðning,“ segir í minnisblaðinu.
Til fjáreigna teljast meðal annars bankainnstæður, verðbréf, hlutabréf og kröfur. Þær eru þannig aðgreindar frá fasteignum í sundurliðun ráðuneytisins.
Ekki eru lagðar til breytingar á skilyrðum eingreiðslunnar vegna eignastöðu viðtakenda í minnisblaðinu.
Markmiðið að mæta fátækasta fólkinu
Ráðuneytið bregst einnig við umsögnum um frumvarpið. Þar segir að sumir umsagnaraðilar hafi gert athugasemdir við útfærslu eingreiðslunnar og í einhverjum tilvikum talið ekki þörf á henni.
Í svari ráðuneytisins er vísað til þess markmiðs frumvarpsins að bæta kjör þeirra sem þurfa bætur og aðrar greiðslur vegna elli, örorku og framfærslu barna, einkum tekjulægstu einstaklinganna.
Þá er vísað til orða Ingu Sæland, sem mælti fyrir frumvarpinu sem staðgengill félags- og húsnæðismálaráðherra 13. október, um að markmið eingreiðslunnar væri að mæta fátækasta fólkinu sem glímdi við mikla dýrtíð.
Greiðsla í ár verði allt að 73.390 krónur
Tölurnar í minnisblaðinu varða greiðsluna í fyrra. Frumvarpið sem er til meðferðar á Alþingi fjallar hins vegar meðal annars um sérstaka eingreiðslu í desember á þessu ári.
Lagt er til að full greiðsla verði 73.390 krónur og verði innt af hendi eigi síðar en 23. desember. Almennt frítekjumark verði 1,2 milljónir króna á árinu og greiðslan lækki um 3,3 prósent af tekjugrunni umfram það mark.
Frumvarpið felur einnig í sér að skýrari lagastoð verði sett fyrir árlegum orlofs- og desemberuppbótum til lífeyrisþega.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

