Guðjón Þórðarson áberandi í erlendum miðlum

Guðjón Þórðarson þjálfaði íslenska landsliðið með góðum árangri undir lok 20. aldarinnar. Ljósmynd/Rax

Afrek Guðjóns Þórðarsonar með Stoke City eru rifjuð upp í breskum fjölmiðlum eftir andlát hans. BBC, The Sun, LBC og Hits Radio hafa öll fjallað um íslenska knattspyrnustjórann, sem lést aðfaranótt föstudags, 71 árs að aldri.

Í umfjöllun BBC er horft til árangurs Guðjóns hjá Stoke, þar sem hann tók við stjórnartaumunum árið 1999 eftir að hafa stýrt íslenska landsliðinu. Undir hans stjórn vann félagið Framrúðubikarinn árið 2000 og komst upp í næstefstu deild tveimur árum síðar. BBC rekur einnig störf hans hjá Barnsley, Notts County og Crewe Alexandra.

The Sun lýsir Guðjóni sem manni sem stuðningsmenn Stoke minnist með hlýju og hafi átt mikilvægan þátt í að breyta stöðu félagsins. Blaðið rifjar upp sigurinn á Bristol City á Wembley árið 2000 og leið liðsins í gegnum umspilið vorið 2002. Þá hafi loks tekist að tryggja sæti í næstefstu deild eftir vonbrigði í umspili tvö ár í röð.

Vinsæll hjá Stoke

LBC og Hits Radio hafa einnig sagt frá fráfalli Guðjóns og viðbrögðum við því. Báðir miðlar benda á að hann hafi stýrt Stoke í yfir 150 leikjum og birta samúðarkveðjur félagsins til fjölskyldu hans.

Stoke birti sjálft ítarlega minningargrein á heimasíðu sinni. Þar er farið yfir viðburðarík ár Guðjóns hjá félaginu og sérstaklega staldrað við umspilið árið 2002. Stoke sneri þá við erfiðri stöðu gegn Cardiff áður en liðið vann Brentford, 2:0, í úrslitaleiknum.

„Við erum afar sorgmædd yfir fráfalli Guðjóns Þórðarsonar,“ segir í yfirlýsingu Stoke. Félagið sendir sonum hans, Bjarna og Þórði, sem báðir léku með liðinu, og öðrum aðstandendum samúðarkveðjur.

Guðjón verður jafnframt heiðraður fyrir leik Íslands og Lúxemborgar í Þjóðadeildinni á Laugardalsvelli í kvöld. Mínútuþögn verður viðhöfð fyrir leikinn og íslensku landsliðsmennirnir bera sorgarbönd.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅