Diljá fann ástina
Diljá Ámundadóttir Zoega, varaþingmaður Viðreisnar, er búin að finna ástina. Diljá og barnalæknirinn Ólafur Heiðar Þorvaldsson eru stödd í Lundúnum þar sem þau njóta alls þess besta sem stórborgin hefur upp á að bjóða.
Diljá og Ólafur voru dugleg að skoða sig um í London. Þau kysstust, skoðuðu list og fóru gott út að borða eins og á að gera í Lundúnum. Hún er sérlegt jólabarn og er hann duglegur að drekka í sig jólastemninguna með henni.
Diljá er útskrifuð úr sálgæslunámi og hefur talað opinberlega um hvernig er að eiga barn með Downs-heilkenni. Ólafur Heiðar var áður kvæntur Tinnu Traustadóttur framkvæmdastjóra sölu og viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun og á með henni tvö börn.
Smartland óskar parinu til hamingju með ástina.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
