„Þetta var eins og að þýða tólf heilar bíómyndir“
Stofnendurnir Daníel Már Friðriksson, Friðrik Ellert Jónsson og Kjartan Örn Bogason. Ljósmynd/Sölvi Dýrfjörð
Sjúkraþjálfunarappið Euneo kemur út á íslensku í dag, á degi íslenskrar tungu.
Appið byggir á íslensku hugviti, er þróað í samstarfi við sjúkraþjálfara og hefur nýst þúsundum Íslendinga.
Bæði appið og kerfi sjúkraþjálfara eru nú á íslensku og öll æfingamyndbönd hafa verið talsett á íslensku, að því er kemur fram í tilkynningu.
„Við hugsuðum stórt frá fyrsta degi og þess vegna varð enskan fyrir valinu í byrjun. En viðtökurnar hér heima hafa verið það góðar að það gengur ekki lengur að appið sé bara á ensku,“ segir Daníel Már Friðriksson, einn stofnenda og framkvæmdastjóri Euneo, í tilkynningunni.
„Við erum íslenskt fyrirtæki og nú þegar sífellt fleiri íslenskar stofur eru farnar að nota appið er mikilvægt að þjónusta skjólstæðinga þeirra eins vel og hægt er. Við erum stolt af því að geta gefið Euneo út á íslensku.“
Þýðing og talsetning æfingamyndbandanna var umfangsmikið verkefni.
„Þetta var eins og að þýða tólf heilar bíómyndir,“ segir Daníel jafnframt í tilkynningunni. Um tuttugu manns aðstoðuðu við yfirferð íslensku leiðbeininganna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗