Diljá fann ástina

Diljá Ámundadóttir Zoega er búin að finna ástina.

Diljá Ámundadóttir Zoega, varaþingmaður Viðreisnar, er búin að finna ástina. Diljá og barnalæknirinn Ólafur Heiðar Þorvaldsson eru stödd í Lundúnum þar sem þau njóta alls þess besta sem stórborgin hefur upp á að bjóða. 

Diljá og Ólafur voru dugleg að skoða sig um í London. Þau kysstust, skoðuðu list og fóru gott út að borða eins og á að gera í Lundúnum. Hún er sérlegt jólabarn og er hann duglegur að drekka í sig jólastemninguna með henni.

Diljá er útskrifuð úr sálgæslunámi og hefur talað opinberlega um hvernig er að eiga barn með Downs-heilkenni. Ólafur Heiðar var áður kvæntur Tinnu Traustadóttur framkvæmdastjóra sölu og viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun og á með henni tvö börn. 

Smartland óskar parinu til hamingju með ástina. 

Diljá Ámundadóttir birti skuggamynd af sér og sínum heittelskaða á Frameless í London. Skjáskot/Instagram

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅