Skilaboð Russel Brand úr fangelsinu vekja mikla reiði - „Viðbjóðslegt,“ segir ráðherra

Vika er liðin síðan leikarinn Russel Brand var dæmdur í tíu og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun og kynferðisbrot. Hann hefur þegar hafið afplánun og mun þurfa að sitja af sér tvo þriðju hluta refsingarinnar áður en hann á möguleika á skilorði. Hann er eins sakborningur í málum tveggja kvenna til viðbótar sem hafa sakað hann um kynferðisbrot.

Leikarinn gekkst við því í aðalmeðferð málsins að hafa nýtt frægð sína og áhrif til að hafa samfarir við konur en hann neitar því að hafa gert nokkuð án samþykkis. Nú hefur eiginkona hans, Laura Gallacher, komið skilaboðum frá Russel á framfæri á YouTube en þar ítrekar leikarinn sakleysi sitt.

„Ástkæru bræður mínir og systur í Kristi, Guð blessi ykkur fyrir stuðninginn. Eins og þið vitið er ég saklaus af þeim ásökunum sem ég hef verið fangelsaður fyrir, svo eitthvað undarlegt er hér á seyði. Góðu fréttirnar eru þær að Kristur er með oss þegar við veljum að fylgja honum, og það hef ég gert.“

Russel rekur að hann sé nú í fangelsi sem kallast HMP-Littlehey, en þar er hann vistaður með öðrum kynferðisbrotamönnum.

„Ég er í HMP Littlehey-fangelsinu – Little eins og í lítið og hey eins og í: Hey, ég er í stærsta kynferðisbrotamannafangelsi Evrópu.“

Góðu fréttirnar eru þær að ég hef fengið að sjá hvað starfsfólkið hér er sterkt, það er vingjarnlegt og dyggt. Hvað samfanga mína varðar veit ég að ég er ekki í stöðu til að dæma nokkurn mann. Ég veit ekki hverjir þeirra eru saklausir og þeir seku, þeir eru líka fólk sem Kristur dó til að frelsa, rétt eins og þú og ég. Elskum öll hvert annað, biðjum hvert fyrir öðru og fyrirgefum hvert öðru eins og Guð fyrirgaf okkur.

Vinsamlegast styðjið ástkæra eiginkonu mína og fjölskyldu. Ég finn fyrir bænum ykkar. Ykkar bróðir í Kristi, Russel.“

Skilaboðin hafa vakið reiði og hefur utanríkisráðherra Bretlands, Ed Miliband, kallað þau viðbjóðsleg. Ráðherrann segir í samtali við Sky-fréttastofuna: „Glæpir hans eru svívirðilegir og hræðilegir. Mér finnst það reyndar viðbjóðslegt að hann sýni enga iðrun í ummælum sínum. Engin iðrun. Engin samúð með brotaþolum, bara viðbjóðsleg ummæli.“

Umboðsmaður brotaþola í London, Andrea Simon, gerir einnig athugasemd við skilaboðin. Þolendur leikarans hafi lýst því fyrir dómi hvernig frægð Russels og yfirlýsingar um sakleysi hafi aukið sársauka og áföll þeirra.

„Sú staðreynd að þolendur þurfi enn að hlusta á þetta er vandamál og mikið áhyggjuefni að við getum ekki gert meira til að vernda þá frá þessu.“

Talsmaður forsætisráðherra hefur kallað eftir því að skilaboðin verði rannsökuð enda sé föngum, samkvæmt breskum lögum, stranglega bannað að gefa út yfirlýsingar sem eru til þess fallnar að valda brotaþolum vanlíðan. Eins er föngum aðeins heimilt að eiga samskipti við fjölmiðla við sérstakar aðstæður.

„Fangar geta ekki sniðgengið þessar reglur með því að láta einhvern annan birta ummæli sín,“ sagði talsmaðurinn.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅