Fyrrum samviskufangi frá Rússlandi heiðursgestur í Hörpu– 25 ára samtakamætti fagnað

Fyrir fjórum árum var rússneska listakonan Aleksandra Skochilenko handtekin fyrir að mótmæla friðsamlega innrás Rússlands í Úkraínu. Hún var síðar dæmd í sjö ára fangelsi  í heimalandinu þar sem aðstæður voru hrikalegar. Hundruð þúsunda einstaklinga um allan heim, þar á meðal á Íslandi, skrifaði undir kröfu til rússneskra stjórnvalda um frelsi hennar. Á sunnudaginn stóð hún hins vegar frjáls frammi fyrir gestum  þegar Íslandsdeild Amnesty International fagnaði 25 ára afmæli mannréttindaherferðarinnar Þitt nafn bjargar lífi.

Fjölmennt var  í Hörpu á sunnudaginn síðastliðinn þegar tónlistarfólk, mannréttindafrömuðir og gestir komu saman til að fagna 25 ára afmæli herferðarinnar. Hlýleg og hátíðleg stemning ríkti á opnunarhátíðinni Sláum taktinn – listræn samstaða, þar sem tónlist, listgjörningur og mannréttindabarátta fléttuðust saman og risastórt gult hjarta lýsti upp framhlið Hörpu sem tákn um þann kraft sem býr í alþjóðlegri samstöðu.

Sasha, eins og Aleksandra er jafnan kölluð, var meðal heiðursgesta á opnunarhátíðinni Sláum taktinn – listræn samstaða, ásamt Agnèsi Callamard, aðalframkvæmdastjóra Amnesty International.

Bréfin handan fangelsismúranna

Sasha var handtekin í apríl 2022 eftir að hafa skipt út verðmiðum í matvöruverslun í Sankti Pétursborg fyrir miða með upplýsingum um innrás Rússlands í Úkraínu. Fyrir þessa friðsamlegu mótmælaaðgerð var hún dæmd í sjö ára fangelsi.

Mál hennar var tekið fyrir í herferðinni Þitt nafn bjargar lífi árið 2022. Fólk víða um heim tók þátt í aðgerðum til stuðnings henni og sendi henni bréf og kveðjur. Í ágúst 2024 var hún látin laus í umfangsmiklum fangaskiptum milli Rússlands og vestrænna ríkja.

Fyrir Söshu voru áhrif stuðningsins ekki aðeins fólgin í kröfunni um frelsi hennar heldur einnig í þeirri vissu að hún væri ekki gleymd.

„Hvert einasta bréf sem ég fékk í herferðinni Þitt nafn bjargar lífi var sönnun þess að þó að ég sætti einangrun í tvö og hálft ár var ég ekki algjörlega ein. Einhvers staðar handan fangelsismúranna vissi einhver hvað ég hét og lét sig varða hvað ég mátti þola,“ segir Sasha.

Lítið framtak sem breytti lífi fólks um allan heim

Saga Söshu er ein margra sem sýna hvers vegna Þitt nafn bjargar lífi hefur í 25 ár verið ein mikilvægasta árlega herferð Amnesty International.

Upphafið má rekja til ársins 2001 þegar hópur aðgerðasinna í Póllandi kom saman og skrifaði 2.326 bréf á einum sólarhring til stuðnings fólki sem sætti mannréttindabrotum. Það sem hófst sem lítið grasrótarframtak hefur síðan vaxið í stærstu árlegu mannréttindaherferð heims.

Milljónir einstaklinga hafa tekið þátt í herferðinni og lagt nafn sitt við baráttuna fyrir réttindum fólks sem þeir þekkja ekki, hafa aldrei hitt og býr jafnvel hinum megin á hnettinum.

Samtakamátturinn hefur meðal annars stuðlað að lausn samviskufanga, niðurfellingu óréttmætra ákæra, sameiningu fjölskyldna og breytingum á óréttlátum lögum.

Magai Matiop Ngong var 15 ára nemandi í Suður-Súdan þegar hann var dæmdur til dauða fyrir morð árið 2017. Hann sagði dómaranum að dauðinn hefði verið slys og að hann væri aðeins barn en samt sem áður fóru fram réttarhöld yfir honum án þess að hann hefði aðgang að lögmanni. Mál Magai var hluti af Þitt nafn bjargar lífi 2019 þar sem gripið var til 700.000 aðgerða honum til stuðnings. Í mars 2022 komst æðri dómstóll að þeirri niðurstöðu að leysa þyrfti hann úr haldi vegna ungs aldurs hans við sakfellingu .  

Árið 2021 var mannréttindafrömuðurinn Germain Rukuki frá Búrúndí látinn laus eftir að hafa verið dæmdur í 32 ára fangelsi vegna mannréttindastarfa sinna. Mál hans var einnig  hluti af herferðinni.

Þessar sögur sýna hvernig einfaldar aðgerðir venjulegs fólks geta orðið að alþjóðlegum þrýstingi sem skilar raunverulegum breytingum.

Hjartsláttur samstöðunnar lýsti upp Hörpu

Eitt eftirminnilegasta augnablik opnunarhátíðarinnar var þegar Anna Lúðvíksdóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International lýsti herferðina formlega setta og risastórt gult hjarta kviknaði á framhlið Hörpu sem sló  á meðan söngur kóra Domus Vox ómaði um Hörpuhornið. Hjartað lýsti upp skammdegið og gerði táknmynd herferðarinnar sýnilega í hjarta Reykjavíkur.

Gula hjartað, sem hannað var af upplifunar- og hönnunarstúdíóinu Gagarín, táknar kraftinn sem býr í samstöðu fólks. Hver undirskrift er eins og hjartsláttur og þegar hjörtu fólks slá í takt verður til samtakamáttur sem getur knúið fram breytingar og jafnvel bjargað mannslífum.

Fjölbreyttur hópur listafólks tók þátt í opnunarhátíðinni. Þar á meðal voru Sigríður Thorlacius og Valdimar Guðmundsson, hljómsveitin TÁR, kórar Domus Vox og tónlistarfólkið Jóhannes Stefán, Guðrún Bjarnadóttir og Eyja Ragnheiðardóttir.

Rússneska listakonan Diana Burkot úr Pussy Riot hannaði einnig sérstakan listgjörning sem hún skapaði fyrir herferðina. Verkið One Person Is One Drop, Sweat and Blood: Source No. 5, byggir á þeirri hugmynd að framlag hvers einstaklings skipti máli og að margar litlar aðgerðir geti saman myndað öflugan samtakamátt.

Samstaða sem skiptir máli á tímum vaxandi valdboðstilburða

Agnès Callamard, aðalframkvæmdastjóri Amnesty International, ávarpaði gesti og fjallaði um mikilvægi alþjóðlegrar mannréttindabaráttu á tímum þegar valdboðstilburðir og árásir á mannréttindi fara vaxandi víða um heim.

[Hér verður bætt við tilvitnun úr ávarpi Agnèsar eftir viðburðinn.]

Í ár beinist Þitt nafn bjargar lífi að átta málum einstaklinga frá Tansaníu, El Salvador, Pakistan, Hong Kong, Túnis, Egyptalandi, Rússlandi og Malí. Þessir einstaklingar hafa verið sviptir frelsi sínu, jafnvel fengið langa fangelsisdóma fyrir að gagnrýna stjórnvöld, nýta tjáningarfrelsi sitt eða standa vörð um réttindi annara.

„Á tímum vaxandi valdboðstilburða megum við ekki vanmeta þann kraft sem felst í því að heimsbyggðin standi saman. Þitt nafn bjargar lífi hefur í 25 ár sýnt okkur að þegar nógu mörg okkar láta í sér heyra getur alþjóðleg samstaða skapað raunverulegan þrýsting og breytt lífi fólks,“ segir Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International.

Gestum opnunarhátíðarinnar gafst tækifæri til að skrifa undir málin til stuðnings einstaklingunum átta og almenningur er hvattur til að leggja sitt af mörkum á amnesty.is.

Hvert nafn er hjartsláttur samstöðunnar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅