Áfall fyrir ríkisstjórnina og reiðarslag fyrir Viðreisn – „Það er brostinn á flótti úr liðinu“

Kristinn H. Guðnason

Mánudaginn 16. nóvember 2026 12:50

Eiríkur segir brotthvarf þriðja þingmannsins meiriháttar áfall fyrir ríkisstjórnina.

Brotthvarf Ingvars Þóroddssonar úr þingflokki Viðreisnar er áfall fyrir ríkisstjórnina og reiðarslag fyrir Viðreisn að mati Eiríks Bergmanns Einarssonar, stjórnmálafræðiprófessors við Háskólann á Bifröst. Stjörnin virki nú ótraust í fyrsta skiptið.

„Þetta voru vandamál en nú er þetta reiðarslag. Þetta er ekkert minna en reiðarslag fyrir Viðreisn,“ segir Eiríkur um brotthvarf Ingvars Þóroddssonar úr þingflokki Viðreisnar. En hann tilkynnti nú fyrir skemmstu að hann væri genginn í Sjálfstæðisflokkinn.

Ingvar er þriðji þingmaður stjórnarflokkanna sem gengur úr liðinu. Áður hafði flokksbróðir hans Jón Gnarr stokkið frá borði sem og Guðmundur Ingi Kristinsson, áður ráðherra í Flokki fólksins. Hinir tveir síðarnefndu segjast enn þá styðja ríkisstjórnina.

Stærra áfall

Eiríkur segir að brotthvarf Jóns Gnarr um miðjan október hafi verið kynnt á mildan hátt. Með samkomulagi væri hann hálfur inni enn þá. Þetta var eitthvað sem flokkurinn hefði getað unnið sig út úr. Ljóst sé þó að ekki var hægt að treysta á þennan stuðning til lengdar.

„Eðli málsins samkvæmt gerist það hægt og rólega að þingmenn utan þingflokka færast yfir á stjórnarandstöðuna. Eftir því sem tíminn líður færast menn í þá áttina yfirleitt,“ segir Eiríkur.

Brotthvarf Guðmundar Inga og Jóns Gnarr hafi verið óvænt en hægt að líta á þau sem einangruð tilvik. Núna sé hins vegar að teiknast upp önnur mynd.

„Það er til gamalt íslenskt orðatiltæki sem heitir: Allt er þegar þrennt er. Þegar þetta safnast svona saman þá er þetta orðið stærra áfall,“ segir hann.

Samfylkingin veikist líka

Þó að Samfylkingin hafi ekki misst fólk úr sínum þingflokki þá veiki þessi mál hana engu að síður.

Sjá einnig:

Ingvar Þóroddsson segir sig úr þingflokki Viðreisnar og gengur í annan flokk

„Þegar ríkisstjórnin veikist þá veikist Samfylkingin. Samfylkingin er í forystu ríkisstjórnarinnar og það er brostinn á flótti úr liðinu. Það er meiriháttar vandamál. Ríkisstjórnin í fyrsta sinn að virka verulega löskuð,“ segir Eiríkur.

Í yfirlýsingu sinni nefndi Ingvar mikið til landsbyggðarmálefni. Svo sem minnkun Loftbrúarinnar og jöfnun atkvæðavægis. Eiríkur telur að ríkisstjórnin eigi ekki í meiri vandræðum með landsbyggðina en annað. Brotthvarf Jóns Gnarr, fyrrverandi borgarstjóra sýni það.

Hvert atkvæði veigameira

Rétt eins og ríkisstjórnin sé að veikjast þá sé stjórnarandstaðan að styrkjast.

„Eftir því sem meirihluti er tæpari þeim mun erfiðara verður að koma málum í gegn. Hvert atkvæði fær meira vægi og hver einasti liðsmaður stjórnarliðsins sem vill beita áhrifum sínum getur það betur,“ segir Eiríkur. „Þessi ríkisstjórn var ansi traust. Hafði sterkan þingmeirihluta og var traust í sessi. En það er hratt að fjara undan því.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅