United vildi fá Hürzeler – Brighton setti upp háa upphæð

Manchester United hafði samband við Brighton til að kanna möguleikann á að fá Fabian Hürzeler, knattspyrnustjóra félagsins, til starfa á Old Trafford.

Samkvæmt The Athletic fóru fram viðræður á milli háttsettra forráðamanna félaganna þar sem United kannaði hvað þyrfti til að losa Hürzeler undan samningi sínum.

Tony Bloom, eigandi Brighton, gerði United ljóst að félagið þyrfti að greiða 15 milljónir punda, tæplega 2,5 milljarða íslenskra króna, til að fá Þjóðverjann.

Hürzeler hafði hins vegar lítinn áhuga á að yfirgefa Brighton á miðju tímabili og vildi klára tímabilið með félaginu.

Það gerði möguleika United á að fá hann til starfa afar litla.

United hefur nú ráðið Mauricio Pochettino til starfa eftir brottrekstur Michael Carrick en Hürzeler var greinilega einnig til skoðunar hjá forráðamönnum félagsins.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅