Myndskeið: Ljót slagsmál í leik á Selfossi
Kennedi Watkins, leikmanni Selfoss, var vísað úr húsi eftir átök við Anítu Rut Helgadóttur, leikmann Njarðvíkur b, í leik liðanna í 1. deild kvenna í körfubolta í gærkvöldi. Aníta Rut fékk óíþróttamannslega villu en gat haldið leik áfram.
Dómararnir mátu viðbrögð Watkins svo að hún skyldi útilokuð frá frekari þátttöku en refsing Anítu Rutar var vægari.
Watkins hafði verið atkvæðamikil í liði Selfoss fyrir brottvísunina. Hún skoraði 27 stig, tók sex fráköst og gaf þrjár stoðsendingar á rúmum 27 mínútum. Selfoss vann engu að síður leikinn, 86:79.
Myndskeið af atvikinu má sjá hér fyrir ofan.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗